Sjókvíaeldi hefur 13-faldast á sex árum

Umfang laxeldis hefur marg­faldast á síðustu árum og útlit er fyrir að það muni vaxa enn frekar í náinni framtíð. Gangi spár eftir mun sjókvíaeldi á laxi árið 2023 verða tæplega helmingi meira en það var samanlagt á árunum 2010-2018.

Sjókvíaeldi hefur aukist hratt á síðustu árum
Sjó­kvía­eldi hefur auk­ist hratt á síð­ustu árum Mynd: Arnarlax

Á síðustu sex árum hefur umfang laxeldis í sjókvíum 13-faldast. Samkvæmt tölum frá Radarnum, mælaborði sjávar­útvegsins, má búast við að sjókvíaeldið muni vaxa enn frekar, eða um 70 prósent, á tíma­bilinu 2020-2023.

Samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu um fiskeldi nam heildar­magn eldis­fisks í fyrra tæpum 41 þúsund tonnum og er það 8 sinnum meira en það var fyrir tíu árum síðan. Lang­stærstur hluti þess, eða 85 prósent, var eldislax, en einnig var framleitt töluvert magn af bleikju og regnboga­silungi.

Búist við enn meiri vexti

Samkvæmt Radarnum kom nær allur eldis­laxinn, eða um 32 þúsund tonn, úr sjókvíum. Vöxturinn á sjókvíaeldinu hefur verið enn hraðari en vöxtur fisk­eldisins í heild sinni, en frá árinu 2015 nam það aðeins 2 þúsund tonnum. Fram­leiðslan á eldislaxi í sjókvíum hefur því 13-faldast á sex árum.

Þróunina má sjá á mynd hér að ofan, sem fengin er með tölum frá Radarnum. Þar eru líka upplýsingar um spáðan framtíðar­vöxt sjókvíaeldisins, miðað við magn seiða sem notuð eru til áfram­eldis. Miðað við þann fjölda hefur sérgreina­dýralæknir fisk­sjúkdóma hjá MAST áætlað að magn sláturslax verði um 43,5 þúsund tonn í ár og 50 þúsund tonn á næsta ári.

Á árinu 2023 er svo gert ráð fyrir að magn eldislax í sjókvíum muni nema 55 þúsund tonnum, sem er tæplega helmingi meira en samanlögð fram­leiðsla á laxi í sjókvíum á árunum 2010-2018.

Eru endalok sjókvíaeldis fram undan?

Óvíst er hins vegar hversu lengi vöxturinn á sjókvíaeldi muni vara. Samkvæmt frétt Stundarinnar fyrr í vikunni spáði Atle Eide, stjórnar­formaður eins stærsta hlut­hafans í íslenska laxeldis­fyrirtækinu Arnarlaxi, endalokum sjókvíaeldis á laxi innan tíu ára. Samkvæmt Eide mun ný tækni binda enda á slíka fram­leiðslu og mun laxeldi frekar fara fram úti á rúmsjó eða með landeldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár