Landsvirkjun: Mikil eftirspurn frá erlendum fyrirtækjum

Björgvin Sigurðsson, framkvæmda­stjóri markaðs- og viðskipta­þróunar hjá Lands­virkjun, segir að eftir­spurn eftir rafmagni hérlendis sé svo mikil að orku­fyrirtæki eigi ekki nægt rafmagn til að selja. Þetta kemur fram á vef Lands­virkjunar, þar sem Björgvin svarar athuga­semdum sem Samtök iðnaðarins settu fram á vef sínum, 18. desember síðastliðinn. 

Þar sagði Almar Guðmundsson, framkvæmda­stjóri samtak­anna, að stóriðjan stæði frammi fyrir afar erfiðu starfs­umhverfi. „Heilt yfir standa fyrir­tækin í stóriðju frammi fyrir afar erfiðu starfs­umhverfi. Afurðar­verð á málm­mörkuðum eru lág, kjara­deilur í gangi og endurnýjanir mikil­vægra raforku­samninga standa yfir[...]Þetta snýst ekki bara um álver eða aðra stóriðju. Það eru miklu fleiri fyrirtæki sem finna fyrir þessu ástandi,“ sagði Almar.

Markmiðið samkeppnishæf kjör

Björgvin segir það markmið Lands­virkjunar að bjóða samkeppnishæf kjör á markaði.

„Það er markmið Lands­virkjunar að bjóða samkeppnishæf kjör á raforku með langtíma­samningum, hagstæðu verði og miklu afhendingar­öryggi. Fast verð til lengri tíma veitir Lands­virkjun samkeppnis­forskot sem viðskipta­vinir meta mikils,“ segir Björgvin.

Hann segir ennfremur að horfa þurfi til saman­burðar á langtíma­samningum, og þar liggi upplýsingar ekki á lausu. „Það er rétt hjá Almari að raforku­verð á skammtíma­mörkuðum í Evrópu og víðar hefur lækkað að undan­förnu. En samkeppnis­hæfni Lands­virkjunar er fyrst og fremst í samningum á föstu verði til 10-15 ára. Gögn um alþjóð­lega raforku­samninga sem gerðir eru á þeim forsendum liggja ekki á lausu en Lands­virkjun býr þó yfir ágætum upplýsingum í gegnum markaðs­starf sitt,“ segir Björgvin og nefnir dæmi frá Kanada.

„Í aðdrag­anda þessara samninga hótuðu álverin að hætta starfsemi sinni. Kanadísk stjórn­völd drógust inn í samningana undir þessum hótunum og hlutuðust til um að aðilar næðu saman,“ segir Björgvin.

Hann segir að þar komi fram að þótt samið sé til 15 ára sé hægt að segja upp samningunum með 5 ára fyrirvara. Álverin skuld­bindi sig til að fjárfesta fyrir rúma 30 milljarða króna og tryggja nokkur þúsund störf til langs tíma. Í einum samningnum verður eigandi álversins að afhenda hlut sinn í vatns­orkuveri í lok samnings­tímans, en hluturinn er metinn á tæplega 40 milljarða króna.

„Þrátt fyrir þessa íhlutun hins opinbera í Kanada er það mat okkar hjá Lands­virkjun að þegar á allt er litið séu samningar sem fyrir­tækið býður hérlendis vel samkeppnis­hæfir við þá sem gerðir voru í Kanada,“ segir hann.

Norðmenn komnir á aðra braut

Sé horft til Noregs, þá segir Björgvin að fátt bendi til langtíma samningar séu boði sem séu hagstæðari en bjóðar á Íslandi. „Þvert á móti hefur Statkraft, systur­fyrirtæki Lands­virkjunar og stærsti raforku­vinnslu­aðili Noregs, upplýst að það bjóði sjaldan samninga til lengri tíma en 5-7 ára. Það hefur ekki verið tilkynnt um nein stór áform um uppbyggingu á nýjum verksmiðjum í Noregi á undan­förnum árum, en á sama tíma hefur Lands­virkjun reist nýjar virkjanir, endur­samið við eitt álveranna á Íslandi, aukið sölu rafmagns til viðskipta­vina í stóriðju og heildsölu, lokið samningum við tvö ný kísilmálmver sem eru í byggingu og fleiri verkefni eru í farvatninu,“ segir Björgvin.

Snýst um að auka verðmæti orkuauðlindanna

Björgvin segir að stefna Lands­virkjunar sé í takt við það markmið að auka verðmæti eins og kostur er. Orku­auðlind sé verðmæt og eftir­spurn frá erlendum fyrir­tækjum sé mikil. „Íslendingar hafa á undan­förnum áratugum styrkt stoðir efnahags­lífsins af harðfylgi og hyggindum. Hér býr vel menntað starfs­fólk, samgöngur eru góðar, raforku­kerfið mjög öflugt, kostnaður við skipa­flutninga hagstæður og aðgangur greiður að evrópskum mörkuðum. Allir þessir þættir hafa stuðlað að því að mikil eftir­spurn er eftir rafmagni hérlendis frá erlendum fyrir­tækjum á kjörum sem Lands­virkjun býður. Það hlýtur að teljast sanngjörn krafa að málflutningur Samtaka iðnaðarins endur­spegli þessa staðreynd og vaxandi verðmæti íslenskra orku­auðlinda,“ segir Björgvin að lokum.

Lands­virkjun hélt á dögunum blaðamanna­fund, þar sem fjallað var um samninga­viðræðurnar við Norðurál. Sagði Hörður Arnarson, forstjóri Lands­virkjunar, að almenningur þyrfti að gera sér grein fyrir því hversu verðmæt endurnýjanleg orka væri.

Hörður sagði á fundinum að það væri mikilvægt að þjóðin gerði sér grein fyrir því hversu mikil verðmæti væri í þeirri frábæru vöru sem endur­nýtanleg orka væri. Það væru verðmæti sem myndu bara aukast og eftir­spurn eftir henni nú væri umtals­vert meiri en framboðið. Raforku­samningar Lands­virkjunar væru á meðal stærstu samninga sem gerðir væru í íslensku viðskipta­lífi og virði þeirra á tíu ára tímabili væri samanlagt um 500 til 600 milljarðar króna. Það væri sambærilegt verðmæti og ríkið sé að fá út úr samningum við kröfuhafa föllnu bankanna þriggja um þessar mundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár