Fjáraukalög gera ráð fyrir 370 milljóna aukaframlagi til þjóðkirkjunnar

Fjárlög næsta árs gera ráð fyrir enn frekara viðbótar­framlagi til kirkjunnar, húsaleigu­kostnaði fyrir nýjar einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar og framlagi til forsætis­ráðuneytisins vegna verndunar í byggð.

Fjár­aukalög ársins 2015 gera ráð fyrir því að þjóð­kirkjan fái 370 milljóna króna auka­fjár­veitingu á árinu 2015. Auk þess er gert ráð fyrir því að aukið fé fari einnig til þjóð­kirkjunnar á árinu 2016. Þessar fjár­veitingar eru til þess að virða samning kirkju og ríkis frá tíunda áratug síðustu aldar. Frá þessu er greint í Frétta­blaðinu í dag.

Þar segir einnig að breytinga­tillögur við fjár­laga­frumvarp Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, nemi samstals 6,7 milljörðum króna. Fjár­laganefnd fékk frum­varpið með breytingar­tillögum til meðferðar í gær ásamt fjárauka­laga­frumvarpi ríkis­stjórnarinnar. Í Frétta­blaðinu segir að samkvæmt því eigi að bjóða út þrjár nýjar heilsu­gæslu­stöðvar á höfuð­borgar­svæðinu á árinu 2016 og er gert ráð fyrir 70 milljóna króna greiðslu í húsaleigu vegna þriggja einka­rekinna heilsu­gæslustöðva. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis­ráðherra segir þó í samtali við blaðið að ekkert hafi verið ákveðið með rekstrar­form þeirra heilsu­gæslustöðva sem ráðast á í að koma upp á höfuð­borgar­svæðinu á næsta ári. Orðalag breytingar­tillögunnar sé ónákvæmt.

Mikill fjöldi breytinga­tillagna hefur verið gerður frá því að fjár­laga­frumvarpið var lagt fram í september. Frétta­blaðið segist hafa heimildir fyrir því að ein slík breyting sé 165 milljóna króna fjár­veiting til forsætis­ráðuneytisins vegna umdeildra laga um verndar­svæði í byggð, en þau voru samþykkt á síðasta þingi. Markmiðið með lögunum er að stuðla að vernd og varð­veislu byggðar sem hefur sögulegt gildi, og samkvæmt þeim er það forsætis­ráðherra sem tekur ákvörðun um að gera byggð að verndar­svæði, en ekki sveitar­félögin sem byggðin er í. Þau hafa verið harðlega gagnrýnd, til dæmis af Sambandi íslenskra sveitar­félaga. Lögunum var meðal annars beitt til að skyndi­friða hafnar­garð í Reykjavík í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár