Klappir óska eftir skráningu á First North

Íslenskt hugbúnaðar­fyrirtæki sem fram­leiðir lausnir á sviði umhverfis­mála, og er eitt af fyrstu fyrir­tækjum sinna tegunda í heiminum, hefur óskað eftir skráningu á First North markað.

Stjórn hugbúnaðar­fyrir­tækisins Klappa Grænna lausna hf. hefur óskað eftir skráningu á First North markað Kaup­hallarinnar í haust. Skráningin er háð skilyrðum og samþykki Kaup­hallarinnar um skráningu bréfa á Nasdaq First North en ekki verður efnt til útboðs á hluta­bréfum eða skulda­bréfum í aðdrag­anda skráningarinnar. Arion banki mun hafa umsjón með skráningunni.

Ekki hefur verið mikið um nýskráningar á First North markaðinn á undan­förnum árum. Iceland Seafood International var skráð í fyrra. First North hlutabréfa­markaðurinn er sniðinn að þörfum vaxtar­fyrirtækja sem eru að taka sín fyrstu skref á verðbréfa­markaði. Hann veitir fyrir­tækjum aðgang að þeim kostum sem fylgja því að vera á verðbréfa­markaði en minni kröfur eru gerðar til stærðar fyrir­tækis og dreifingar eignar­halds. Þá er skráningar­ferlið einfaldara og skylda til fyrir­tækja til upplýsinga­gjafar ekki eins viðamikil og á Aðal­markaðnum.

Í tilkynningu vegna fyrir­hugaðrar skráningar Klappa segir að hugbúnaðar­lausnir Klappa séu eitt af allra fyrstu upplýsinga­kerfum sinnar tegundar í heiminum á sviði umhverfis­mála og er þeim ætlað að styðja fyrirtæki, sveitar­félög og ríki við að byggja upp öfluga innviði til að takast á við þær áskoranir sem framundan eru á því sviði. „Traust og skilvirk aðferða­fræði hugbúnaðarins mætir þörfum notenda búnaðarins við að safna saman, samkeyra, greina og miðla áreiðanlegum umhverfis­upplýsingum. Hugbúnaðurinn mætir alþjóðlegri umhverfis­löggjöf varðandi flesta þætti umhverfis­mála og einnig mikil­vægum þáttum íslenskra og evrópskra umhverfis­laga hvað varðar söfnun og miðlun á upplýsingum um orku­notkun og upplýsingum um meðferð á úrgangi.“

Byggir á hugviti starfsfólks

Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri félagsins, segir að Klappir byggi á hugviti starfs­fólks sem hefur sérþekkingu og langa reynslu af umhverfis­málum skipulagsheilda, flota­stýringu bifreiða og skipa, hugbúnaðar­þróun og alþjóðlegri starfsemi. „Við lítum svo á að með skráningu fyrir­tækisins á Nasdaq First North markaðinn í Kaup­höllinni sé stigið mikilvægt skref í framtíðar­undir­búningi félagsins. Við teljum að með skráningunni skapist meiri sýnileiki og umgjörð sem komi fyrir­tækinu til góða þegar fram í sækir svo sem almenn og samræmd upplýsinga­gjöf til hluthafa, aukinn möguleiki fyrir nýja fjárfesta til koma inn í hluthafa­hópinn og fara út úr fjár­festingunni þegar þeim hentar. Þá auðveldar skráningin fjár­mögnun á stórum verkefnum ef aðstæður kalla á ýmist með útboði á nýju hlutafé eða útgáfu skulda­bréfa. Með skráningunni viljum við jafnframt gefa þeim fjár­festum og einstaklingum, sem hafa trú á að með grænum innviðum og öflugri upplýsinga­tækni sé hægt að minnka verulega losun gróðurhúsa­lofttegunda, tækifæri til að vera þátt­takendur í þróun grænna hugbúnaðar­lausna og innleiðingu þeirra í gegnum Klappir.“

Hugbúnaður Klappa er skýja­lausn sem felur það í sér að í kjölfar breytinga á umhverfis­lögum og reglu­gerðum þjóðríkja og yfir­þjóðlegra stofnana er hugbúnaður hjá öllum viðskipta­vinum uppfærður jafnóðum til samræmis við þær breytingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár