Fjögur stærstu fyrirtæki heimsins eru kínverskir bankar

Fjögur stærstu almennings­hlutafélög heimsins eru öll kínversk samkvæmt nýjum lista Forbes yfir stærstu almennings­hlutafélög heims. Stærsta félag heims, þegar horft er til eigna, er kínverski iðnaðar- og verslunar bankinn, ICBC, en heildar­eignir hans eru metnar á 3.322 milljarða Bandaríkja­dala. Starfs­menn eru ríflega 420 þúsund, aðallega í Asíu, en einnig á helstu markaðs­svæðum alþjóðlegra fjármála­fyrirtækja.

Annað stærsta félag heims er kínverski framkvæmda­bankinn, CCB, en heildar­eignir hans eru metnar á 2.698 milljarða Bandaríkja­dala. Í þriðja sæti eru kínverski land­búnaðar bankinn, ABC, með eignir upp á 2.574 milljarða Bandaríkja­dala og í fjórða sæti er Banki Kína, BC, með eignir upp á 2.458 milljarða Bandaríkja­dala.

Öll félögin eru að langmestu leyti í eigu kínverska ríkisins, en alþjóð­legir fjár­festinga­sjóðir eiga einnig hluta í þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár