Íhaldsflokkurinn stærsti flokkur Bretlands samkvæmt útgönguspám

Samkvæmt útgönguspá sem gerð var fyrir helstu ljósvaka­miðla Bretlands verður Íhalds­flokkurinn áfram stærsti flokkur landsins að loknum þing­kosningum sem fóru fram í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Sky News.

Samkvæmt spánni fær Íhalds­flokkurinn 316 sæti, Verkamanna­flokkurinn 239, Skoski þjóðar­flokkurinn 58, Frjálsyndir demó­kratar tíu og UKIP tvö sæti. Þá fá Græningjar tvö sæti, Plaid Cymru fjögur og aðrir 19.


Alls eru 533 ein­menn­ings­kjör­dæmi í Englandi, 59 í Skotlandi, 40 í Wales og 18 í Norður-Írlandi. Það þýðir að Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn fær öll nema eitt þeirra þing­sæta sem eru í boði í Skotlandi. Hann er í dag með sex sæti á breska þing­inu.

Til að mynda meirihluta þarf 326 sæti og samkvæmt útgöngu­spánni ná Íhalds­flokkurinn og Frjáls­lyndir demó­kratar, sem í dag mynda samsteypu­ríkisstjórn, nákvæmlega þeim fjölda.


Latest ICM poll (03 - 06 May): LAB - 35% (-) CON - 34% (-1) UKIP - 11% (-) LDEM - 9% (-) GRN - 4% (+1)


— Britain Elects (@britainelects) May 7, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár