Donald Trump hótar sjálfstæðu framboði

Auðkýfingurinn og ólíkinda­tólið Donald Trump útilokar ekki að bjóða sig fram án aðkomu Repúblíkanaflokksins, njóti hann ekki sann­gjarnar meðferðar í forkosninga­baráttu repúblikana til forseta­kosninganna í Banda­ríkjunum 2016. Þannig gæti farið, hljóti Trump ekki útnefningu í forvali repúblikana, að hann bjóði sig engu að síður fram til forseta Banda­ríkjanna, gegn fram­bjóðanda Demókrata­flokksins og fram­bjóðanda Repúblikana­flokksins.

Að mati Trumps hefur framkvæmda­stjórn Repúblikana­flokksins ekki sýnt framboði hans mikinn stuðning til þessa. Viðtökurnar hafi verið aðrar en þegar hann hefur lagt flokknum til stuðningsfé í gegnum tíðina.

Erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað um mögulegt framboð Trumps á eigin vegum, meðal annars Politico og Business Insider. Blaða­maður Business Insider segir að sjálfstætt framboð hans gæti reynst martröð fyrir Repúblikana­flokkinn, þar sem Trump myndi sækja fylgi sitt í raðir sömu kjósenda.

Kosninga­barátta Trumps hefur á köflum verið lyginni líkust. Hann hefur ráðist harkalega að virtum flokks­félögum, meðal annars John McCain fyrrum forseta­efni flokksins, og látið afar gagnrýni­verð ummæli falla um innflytjendur í Banda­ríkjunum. En þótt margir hristi hausinn yfir illa ígrunduðum ummælum hans þá fellur pólitísk sýn hans vel í kramið hjá mörgum Bandaríkja­mönnum. Í könnunum mælist hann lang­vinsælasti fram­bjóðandinn í forvali Repúblikana­flokksins, en alls eru sextán í framboði.

Miklar vinsældir og sýnileiki Trumps hafa valdið öðrum framboðum nokkrum áhyggjum, ekki síst vegna þess að með miklum látum þá stýrir Trump í raun kosninga­baráttunni. Á sama tíma og margir Repúblikanar vilja ráðast að framboði Trumps, þá eru aðrir sem telja það óráð. Í nýlegri grein NY Times er fjallað um stöðuna og bent á að ef Trump verður hrakinn burt þá aukast líkurnar á sjálf­stæðu framboði hans.

Til marks um að varla líði sá dagur án þess að Trump vekji á sér athygli, þá lét hann Anderson Cooper, frétta­mann CNN, heyra það í viðtali sem birt var í gær, miðvikudag. „Ég get sagt þér að fólk treystir þér ekki og það treysta ekki fjöl­miðlum,“ sagði Trump, sakaði fjölmiðla um að vera óheiðarlegir og Cooper sérstak­lega um að spyrja sig eingöngu um neikvæða hluti.

Viðtalið má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár