Fylgi Trumps mælist 24 prósent - Sagður heimsins stærsta tröll

Auðkýfingurinn Donald Trump mælist vinsælasta forseta­efni Repúblikana­flokksins, samkvæmt nýrri könnun Washington Post og ABC sjónvarps­stöðvarinnar. Fylgi Trumps mældist 24 prósent í könnun sem gerð var dagana 16. til 19. júlí. Það er tvöfalt meira fylgi en hjá næsta fram­bjóðanda. Enginn Repúblikani hefur mælst með meira fylgi í könnunum á þessu ári. Vinsældir Trumps hafa sexfaldast frá því í byrjun maí, skömmu áður en hann tilkynnti formlega um að hann sækist eftir því að vera forseta­efni Repúblikana í forseta­kosningunum 2016.

Næstur á eftir Trump í skoðana­könnun Washington Post og ABC News er Scott Walker, ríkis­stjóri Wisconsin fylkis. Hann tilkynnti um framboð sitt fyrir viku síðan. Jeb Bush, fyrrum ríkis­stjóri Flórída fylkis og bróðir George Bush fyrrum Bandaríkja­forseta, mælist með 12 prósent fylgi. Sjö aðrir fram­bjóðendur í forvali flokksins fengu þrjú til átta prósent fylgi en alls eru 16 í framboði.


Aldrei hafa verið svo margir fram­bjóðendur í forvali Repúblikana­flokksins. Því var ákveðið að einungis tíu kæmust að í komandi sjónvarps­kappræðum sem sjónvarps­stöðin Fox News stendur fyrir. Þær fyrstu verða haldnar þann 6. ágúst næst­komandi og verður valið í þær eftir mældum vinsældum fram­bjóðenda í skoðana­könnunum. Niður­stöður kannana í dag skipta því miklu máli, jafnvel þótt kosninga­baráttan sé aðeins nýhafin fyrir alvöru.

Vinsældir dvína eftir skot á McCain

Frá því að Trump tilkynnti um framboð sitt til forseta­efnis Repúblikana hefur hann látið hver umdeildu ummælin falla á fætur öðru. Á laugar­daginn sagði hann John McCain, öldungar­deildar­þingmann flokksins og fyrrum forseta­fram­bjóðanda, ekki vera stríðs­hetju. Á 7. áratugnum var McCain fangi Norður-Víetnamska hersins í fimm og hálft ár og var pyntaður ítrekað á þeim tíma.


Margir brugðust illa við ummælum Trumps um flokks­félaga sinn, auðkýfingurinn dróg lítillega í land með ásakanir sínar en baðst ekki afsökunar.


Í skoðana­könnun Washington Post og ABC, sem gerð var dagana 16. til 19. júlí, féllu vinsældir Trumps verulega eftir að hann gerði lítið úr John McCain. Blaðamenn Washington Post segja erfitt að meta það á þessum tíma­punkti hver þróunin verður á vinsældum Trumps í kjölfar pólitískrar árásar hans á McCain.

Er Trump heimsins stærsta tröll?

Vinsældir Trumps meðal hluta kjósenda Repúblikana­flokksins má meðal annars rekja til óvæginna og harðneskju­fullra ummæla hans um innflytjendur í Banda­ríkjunum. „Þegar Mexíkó sendir fólkið sitt, þá er það ekki besta fólkið þeirra. Þau senda fólk sem glíma við mörg vandamál og þau taka þessi vandamál með sér. Þau taka með sér fíkniefni og glæpi. Þetta eru nauðgarar,“ sagði Trump í einni umdeildustu ræðu sinni um innflytjendur í Banda­ríkjunum frá nágranna­ríkinu Mexíkó.


Mörgum þykir afstaða Trump afar fordóma­full og fáfróð. Vegna ummæla sinna hefur hann misst sjónvarps­samning og fjölmörg fyrirtæki hafa rift samningum við hann. Engu að síður hafa vinsældirnar haldið áfram að aukast í skoðana­könnunum.


Nate Silver, ritstjóri frétta­síðunnar FiveThirtyEight.com, birti í gær úttekt þar sem hann sagði Trump vera heimsins stærsta „tröll“. Þar á hann við einstakling sem viljandi skapar illdeilur og kallar á athygli með öllum tiltækum ráðum, meðal annars illa ígrunduðum og ögrandi skoðunum. Silver er ósammála ákvörðun fjöl­miðilsins Huffington Post um að skilgreina allt sem viðkemur kosninga­baráttu Trumps sem skemmtiefni en ekki pólitískar fréttir. „Framboð hans er stjórnmála­saga en ekki eingöngu skemmtiefni,“ segir Silver. „Eftir tólf ár sem blaða­maður á internetinu, þá hef ég lært að hið fornkvæða er satt. Ekki gefa tröllinu að borða. Eina leiðin til þess að drepa tröll eins og Trump er að veita því ekki athygli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár