Þorgerður Katrín: Fólk með „öfundargen“ elur á togstreitu milli útgerðarmanna og þjóðarinnar

„Það er búið að ala á ákveð­inni tog­streitu af hálfu stjórn­mála­manna,“ sagði nýkjör­inn þing­maður Við­reisnar í við­tali á Útvarpi Sögu. Þing­mað­ur­inn sat meðal ann­ars í stjórn Tækni­skól­ans fyrir hönd hags­muna­sam­taka útgerð­ar­manna og barð­ist gegn hækkun veiði­gjalda.

Fólk sem stjórn­ast af „öfund­ar­geni“ hefur alið á tog­streitu á milli útgerð­ar­manna og þjóð­ar­innar. Þetta sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, nýkjörin þing­kona Við­reisnar, í við­tali á Útvarpi Sögu þann 30. des­em­ber en flokkur hennar á nú í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Bjarta fram­tíð. 

Ummæli Þor­gerðar hafa vakið athygli á sam­fé­lags­miðlum í dag eftir að Torfi H. Tulinius, pró­fessor í íslenskum mið­alda­fræðum við Háskóla Íslands, vitn­aði til þeirra í aðsendum pistli sem birt­ist í Frétta­blað­inu. 

Þor­gerður Katrín sagði í útvarps­við­tal­inu það vera „ótrú­lega sárt“ að ekki væri sátt milli útgerð­ar­innar og þjóð­ar­innar og sagði að stundum væri um að ræða afleið­ingu „öfund­ar­gena“: „Þetta er nátt­úr­lega mögnuð atvinnu­grein [sjáv­ar­út­veg­ur­inn, innsk. blaðam.] og hvað við erum búin að vera að gera hér en eftir stendur að það er ekki sátt á milli útgerð­ar­innar og þjóð­ar­innar og það finnst mér ótrú­lega sárt. Mér finnst það vont, það er tog­streita og það er búið að ala á ákveð­inni tog­streitu af hálfu stjórn­mála­manna í gegnum tíð­ina, af hálfu alls konar fólks sem að... stundum er kannski ekki nægi­lega… stundum bara öfund­argen sem ráða ríkjum. En síðan er það líka þver­móðska sem kemur fram af hálfu hugs­an­lega þeirra sem hafa starfað innan atvinnu­grein­ar­innar líka að segja bara að það megi ekki snerta við neinu. Svo ég held að það sé mikil ögrun og áskorun að reyna að kalla fram það sam­tal sem leiðir til þess að þjóðin verði sátt­ari og enn ánægð­ari með sjáv­ar­út­veg­inn og að hún fái aukna arð­semi af því að verið er að veiða fisk­inn úr sam­eig­in­legri auð­lind okkar allra.“

Torfi H. Tulinius skrifar um orð Þor­gerðar Katrínar í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. „Íslensk auð­manna­stétt er því sér­lega for­hert í hags­muna­gæslu sinni. Þetta lýsir sér e.t.v. í orði sem þing­maður Við­reisnar, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, greip til undir lok við­tals á Útvarpi Sögu 30. des. sl. Um útvegs­menn sem tregð­ast við að greiða eðli­legt afnota­gjald af sam­eig­in­legri auð­lind okkar tal­aði hún af virð­ingu en sak­aði þó um þrjósku. Um þau stjórn­mála­öfl sem krefj­ast auð­lind­arentu not­aði hún orðið „öfund­argen“. Orðið ber með sér að öfund sé sumu fólki eðl­is­læg. Það gefur í skyn að krafan um að auðnum sé skipt af meiri skyn­semi og rétt­læti sé sið­ferð­is­lega ámæl­is­verð. Með orð­inu virð­ist þing­maður Við­reisnar opin­bera við­horf valda­stétt­ar­innar til þeirra sem vilja betra, rétt­lát­ara og fram­sækn­ara sam­fé­lag: þeir lúta stjórn öfund­argens­ins og því ekk­ert mark á þeim tak­andi.“

Stundin tók við­tal við Þorgerði Katrínu í haust þar sem sjáv­ar­út­vegs­mál báru á góma. Sagðist hún meðal ann­ars vilja ræða umbætur í sjáv­ar­út­vegi af yfir­vegun. „Við viljum ekki stilla útgerð­ar­mönnum upp sem and­stæð­ingum þeirra sem vilja breyt­ingar. Það er þeirra hagur að fá stöð­ug­leika til langs tíma í grein­ina og þeir hljóta að átta sig á því að þeir verða að taka þátt í því að breyta kerf­inu.“

Sem þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins barð­ist Þor­gerður af mik­illi hörku gegn veiði­gjöld­unum sem rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og Stein­gríms J. Sig­fús­sonar lagði á útgerð­ar­fyr­ir­tæki. Eftir að Þor­gerður hætti á þingi árið 2013 tók hún til starfa hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins. Á meðal aðild­ar­sam­taka þeirra eru Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sem beita sér fyrir útgerð­ar­hags­munum en Þor­gerður sat um tíma fyrir hönd síð­ar­nefndra sam­taka í stjórn Tækni­skól­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár