Grunaður um sprengjuárás í Ósló

Norska lögreglan leitar manns sem grunaður er um að hafa komið fyrir sprengju við bandaríska sendi­ráðið í Ósló um helgina.

Norska lögreglan birti í dag tvær ljós­myndir af manni sem grunaður er um að hafa komið fyrir sprengju við bandaríska sendi­ráðið í Ósló um helgina. Enginn slasaðist í sprengingunni og skemmdir voru minni­háttar.

Myndirnar eru úr eftirlits­myndavélum og sýna mann í dökkum fatnaði með hettu yfir höfði og bakpoka á bakinu. Andlit hans sést ekki á myndunum.

Að sögn lögreglu er talið að maðurinn hafi komið fyrir heima­tilbúnum sprengju­búnaði við inngang sendi­ráðsins.

„Ekki hafa verið borin kennsl á viðkomandi og við höfum ekki neinn tiltekinn grunaðan. Enginn hefur verið hand­tekinn og unnið er af fullum krafti að því að bera kennsl á gerandann,“ segir í yfir­lýsingu lögreglu.

Sprengingin varð um klukkan eitt aðfara­nótt sunnudags við inngang að ræðis­skrifstofu sendi­ráðsins.

Lögreglan segir að ekki sé útilokað að um hryðju­verk hafi verið að ræða, en aðrar skýringar séu einnig til skoðunar.

Rann­sakendur kanna jafnframt hvort atvikið kunni að tengjast átökunum í Miðausturlöndum.

Í yfir­lýsingu lögreglu segir einnig að yfirvöld séu meðvituð um myndband sem birt var á síðu sendi­ráðsins á Google Maps um svipað leyti og sprengingin varð. Mynd­bandið hefur síðan verið fjarlægt.

Mynd­bandið var sett inn af óþekktum aðila og virðist sýna Ali Khamenei, æðsta leiðtoga Írans.

„Lögreglan rannsakar nú ýmis atriði sem tengjast mynd­bandinu, en við viljum ekki tjá okkur frekar um málið að svo stöddu,“ segir í yfir­lýsingunni.

Bandarísk sendiráð í Miðausturlöndum hafa undan­farið verið sett í aukna viðbúnaðar­stöðu vegna hernaðar­aðgerða Banda­ríkjanna gegn Íran. Nokkur þeirra hafa orðið fyrir árásum þar sem Íran hefur svarað með árásum á iðnaðar- og diplómatísk skotmörk.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár