Tekjur og gjöld ríkissjóðs langt umfram áætlun

Bæði skatt­tekjur og útgjöld ríkis­sjóðs í fyrra reyndust vera töluvert meiri en ríkis­stjórnin gerði ráð fyrir í fjárlögum sínum. Þrátt fyrir það dróst skulda­hlutfallið saman á milli ára vegna mikils hagvaxtar.

Hið opinbera skilaði 288,3 milljarða króna halla í fyrra, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu um opinber fjármál. Hallann má að mestu leyti rekja til lakrar afkomu ríkis­sjóðs, en hann skilaði 266 milljarða króna halla, sem er tveimur milljörðum krónum lakari niður­staða en gert var ráð fyrir í fjárlögum í fyrra.

Mikill halli en lægra skuldahlutfall

Halli hins opinbera nam alls 8,9 prósent af lands­framleiðslu og jókst á milli ára. Hann hefur ekki verið jafn­mikill frá árinu 2008, þegar hann nam rúmum tólf prósentum af lands­framleiðslu.

Samkvæmt Hagstofu jukust tekjur um 6,1 prósent á síðasta ári, en skuldir um 7,4 prósent. Þrátt fyrir skulda­vöxt var hagvöxturinn enn meiri í fyrra, sem leiddi til þess að skulda­hlutfall ríkis­sjóðs, að meðtöldum lífeyris­skuld­bindingum, sem hlutfall af lands­framleiðslu dróst saman úr 100,3 prósentum í 96,2 prósent. Skulda­hlutfall sveitar­félaganna lækkaði sömuleiðis, úr 13,8 prósentum í 13,7 prósent af lands­framleiðslu.

Vanmat á tekjum og gjöldum

Í fjárlögum fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir að tekjur ríkis­sjóðs myndu nema 772 milljörðum króna í fyrra. Tölur Hagstofu benda til þess að þetta hafi verið töluvert vanmat, en samkvæmt þeim námu tekjurnar 911 milljörðum króna.

Þar munaði mest um tekjur af virðis­aukaskatti, sem spáð var að yrði 233 milljarðar króna, en reyndust vera 125 milljörðum krónum meiri. Sömuleiðis voru tekjur af tekjuskati einstaklinga tíu milljörðum krónum meiri en spáð var, auk þess sem tekjur af trygginga­gjöldum og tekju­skatti lögaðila voru vanmetin um tvo milljarða hvort um sig.

Einnig voru útgjöld ríkis­sjóðs vanmetin í fjár­lögunum, en talið var að þau yrðu 1.036 milljarðar króna í fyrra. Þau reyndust hins vegarvera 142 milljörðum meiri, eða um 1.178 milljarðar króna. Afkoman, sem búist var við að yrði 264 milljarðar króna, reyndist því vera tveimur milljörðum krónum lakari, eða um 266 milljarðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár