Villan í Scarface til sölu fyrir litla 2,3 milljarða

Villa eiturlyfja­barónsins Tony Montana, úr kvik­myndinni Scarface frá árinu 1983, í leik­stjórn Brian De Palma, er til sölu fyrir 17,8 milljónir Bandaríkja­dala, eða röska 2,3 milljarða íslenskra króna. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá málinu.

Húsið, sem er tæplega þúsund fermetrar að flatar­máli, er búið fjórum svefn­herbergjum og níu baðherbergjum, og er umvafið persnerskum garði með ótal gosbrunnum. Eignin hefur verið auglýst til sölu í á annað ár, en upphaf­legi verð­miðinn hljóðaði upp á 35 milljónir Bandaríkja­dala, eða tæpa 4,6 milljarða króna. Loka­atriði Scarface þar sem Montana strá­fellir byssumenn í tugatali áður en hann fellur í mikilli kúlnahríð átti til að mynda að eiga sér stað í húsinu.

Glæpa­maðurinn Tony Montana bjó vel, það verður ekki af honum tekið. MYND: Village Properties

Glæpamaðurinn Tony Montana bjó vel, það verður ekki af honum tekið. MYND: Village Properties
Glæpa­mað­ur­inn Tony Montana bjó vel, það verður ekki af honum tekið. MYND: Village Properties

Aðdáendur Scarface vita auðvitað mæta vel að Kúbverjinn Tony Montana, sem Al Pacino lék svo óaðfinnanlega, byggði upp eiturlyfja­veldi sitt í Miami í Florida ríki á austur­strönd Banda­ríkjanna. Villan sem var notuð við gerð kvik­myndarinnar sem heimili Montana, og er nú föl fyrir 2,3 milljarða króna, er hins vegar staðsett á vestur­strönd Banda­ríkjanna, nánar tiltekið í Montecito í Kalifórníu, um 145 kílómetra vestur af Los Angeles.

Eignin hefur gengið í gegnum endur­bætur frá því að sagan um Scarface var kvik­mynduð og ku jafnvel enn glæsilegri í dag en árið 1983. Hægt er að skoða myndir af villunni í umfjöllun Business Insider hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár