Ísbirnir og úlfar í Danmörku! Dagbók frá Kaupmannahöfn IV.

Illuga Jökuls­syni gekk ekkert að finna merkilegar fréttir frá Danmörku. En þá komu blessuð dýrin til bjargar.

Kjálkinn af ísbirninum.
Kjálkinn af ísbirn­inum. Þetta er skjá­skot af vef Politi­ken og ég vona að blaðið fyr­ir­gefi mér það og hann Finn Frandsen sem tók mynd­ina.

Þótt ég hafi samvisku­samlega keypt dönsku dagblöð þessa daga sem ég hef verið hér í Kaupmanna­höfn, og skoðað vefsíður þeirra af þó nokkurri kostgæfni, þá verð ég að segja að ég ætti í mestu vandræðum með að segja ykkur hvað er í fréttum hér í Danmörku.

Jú, þeir eru mjög að fylgjast með hetjunni Fuglsang í einhverri hjólreiða­keppni.

Í pólitík og samfélags­málum virðist fátt markvert á seyði.

Það er einhver Rasmussen í stól forsætis­ráðherra eins og venjulega og hann virðist ekki vera að gera neina stór skandala; að minnsta kosti hafa blöðin þá ekki komist að raun um það.

Og þótt Danmörk sé í Evrópu­sambandinu, þá verð ég ekki deyjandi fólk hér á götunum, og eldhafið sem Ögmundur Jónasson varaði okkur við, það sé ég hvergi.

Að vísu var ansi heitt í dag og fólk lá á víð og dreif hreyfingar­lítið en það var bara í sólbaði og virtist frekar vel haldið.

En nú hef ég þó loksins séð tvær almennilegar fréttir úr þessu landi. Í fyrsta lagi sá maður úlf. Það væri nú ekki svo mjög í frásögur færandi, skilst mér, því úlfar slæðast víst hingað æ oftar frá Þýska­landi og er til marks um eðlilegt dýralíf Evrópu er víst aftur svolítið á uppleið.

Og til marks um það var einmitt að á hæla úlfsins kom ekki bara annar úlfur, heldur heilir níu aðrir úlfar.

Átta ylfingar og svo einn full­orðinn í lokin.

Manninum í fréttinni fannst þetta eiginlega einum of mikið af því góða. Hann hugleiddi hvort allir þessir ylfingar myndu kannski éta börnin hans. Hvort ekki væri rétt að skjóta þá.

Það ætla ég að vona að Danir hafi vit á að gera ekki. Þeir fáu úlfar sem eftir lifa í Evrópu hafa komist af vegna þess að þeir forðast mannfólk og ráðast alls ekki á það. Það er sjálfsagt orðið meira og minna innprentað í gen þeirra.

Hin fréttin, sem mér fannst merkileg, snýst líka um óvænt villidýr á Jótlandi.

Ísbjörn.

Í Vandsyssel nyrst á Jótlandi fannst kjálki úr risastóru bjarndýri.

Það fannst ekki alveg nýlega, heldur árið 1921 og fyrst héldu menn að þetta væri bein úr risa­vöxnum skógar­birni. En svo kom í ljós að þarna hafði ísbjörn verið á ferð og það var í meira lagi undarlegt - því beinið er talið vera 13.000 ára gamalt.

Þá var ísöld að ljúka á norður­hveli jarðar, jökull var enn yfir Noregi þótt mjög væri hann farinn að hopa og milli Noregs og Danmerkur var alldjúpur og breiður fjörður þar sem nú er hluti Norður­sjávar og Skagerak. 

Þá hefur þessi ísbjörn væntanlega synt frá Noregi til Danmerkur, þar sem hann hefur orðið innlyksa. En tíðindin eru raunar þau að nú hefur tekist að ná DNA úr kjálka­beininu svo hægt verður að segja nánar til um það hvaðan björninn kom. 

Það mun nefnilega vera furðu mikill munur á DNA ísbjarna eftir búsetu.

Mér finnst þetta stór­merkilegt. Ef ísbirnir lifðu virkilega í Danmörku fyrir 13.000 árum og svona stórt dýr hafði þar nóg að bíta og brenna, hvers vegna settust ísbirnir þá ekki að á Íslandi á ísöldinni?

Ég hef spurt að þessu margoft en aldrei fengið viðhlítandi svör.

Menn segja: Ísbirnir eru sérþjálfaðir í að veiða seli af hafís. Þau skilyrði eru sjaldnast á Íslandi.

Þetta er ónýtt svar. Fyrst ísbirnir voru svo sunnarlega sem í Danmörku, þá hafa þeir alveg áreiðanlega búið nógu lengi á Íslandi til að taka upp lifnaðar­hætti sem pössuðu landinu.

En kannski voru ísbirnir á Íslandi.

Kannski var sagan sönn sem þrælar Hjörleifs sögðu, að björn hefði drepið húsbónda þeirra.

Ég mun fylgjast spenntur með og þegar barna­börnin koma í vikunni mun ég fara með þau í dýra­garðinn og leggjast í ísbjarna­rannsóknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dagbók frá Kaupmannahöfn

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár