Brim áminnt opinberlega af Kauphöll fyrir að upplýsa ekki um viðskipti tengdra aðila

Brim upp­lýsti ekki um að félagið hefði keypt eign­ar­hlut í græn­lenskri útgerð af stærsta eig­anda sínum. Við­ur­laga­nefnd Kaup­hallar Íslands hefur áminnt félagið fyrir það og telur brotið alvar­legt.

Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur og stjórnarmaður í Brimi. Hann var auk þess forstjóri Brims þar til í lok apríl 2020.
Guð­mundur Krist­jáns­son er aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og stjórn­ar­maður í Brimi. Hann var auk þess for­stjóri Brims þar til í lok apríl 2020. Mynd: Brim

Við­ur­laga­nefnd Nasdaq Iceland hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að áminna beri Brim hf. opin­ber­lega fyrir brot á ákvæðum í reglum Kaup­hall­ar­innar fyrir útgef­endur hluta­bréfa.

Það er gert vegna þess að Brim birti til­kynn­ingu 2. júlí 2020 undir yfir­skrift­inni „Brim fjár­festir á Græn­landi“. Í til­kynn­ing­unni var greint frá fjár­fest­ingu Brim í græn­lenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu Arctic Prime Fis­heries ApS [APF). Þar kom meðal ann­ars fram að útgef­andi kæmi að fjár­mögnun APF, eign­ist hlut í félag­inu og myndi selja því nýsmíð­aðan frysti­tog­ara, Ililiveq. Samtals nemi fjár­fest­ing Brim í APF um 85 millj­ónum evra. Þá kom einnig fram að „APF [sé] í meiri­hluta­eigu græn­lenskra aðila, Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, sem á 16,5% og hefur verið hlut­hafi í félag­inu frá árinu 2013 og Brims, sem eftir við­skiptin mun eiga 16,5% hlut í félag­inu.“

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er stærsti eig­andi Brim og því var um við­skipti tengdra aðila að ræða. Brim, skráð félag í Kauphöll, var að kaupa eign­ina af stærsta eig­anda sínum, sem á beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt um 44 pró­sent hlut í Brimi.

Aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur er Guð­mundur Krist­jáns­son, sem er líka stjórn­ar­maður í Brimi og vara­for­maður í þriggja manna stjórn AFP. 

Þann 17. júlí óskaði Kaup­höllin eftir skýr­ingum á mál­inu frá Brimi og af hverju ekki hefði verið upp­lýst um að mót­að­ili dótt­ur­fé­lags­ins í við­skipt­unum væri Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur. Sú skýr­ing barst að Brim hefði ekki gert það vegna þess að fjár­hæðin sem greidd var til Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur fyrir helm­ing­inn af hlut þess í APF hefði verið óveru­legur hluti heild­ar­fjár­fest­ingar Brims í félag­inu.

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur á enn 16,5 pró­sent hlut í APF eftir söl­una til Brims og nýtur því áfram góðs af heild­ar­fjár­fest­ingu Brims í félag­inu.

Ekki fallist á að viðskiptin hafi verið minniháttar

Brim hélt því fram í skýr­ingum sínum, sem sendar voru til Kaup­hall­ar­innar 29. júlí, að félagið fengi ekki séð að upp­lýs­inga­gjöf þess hefði verið vill­andi gagn­vart upp­lýstum fjár­festum þótt ekki hefði verið greint frá því að sá sem seldi Brim hlut­inn í APF væri Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, stærsti eig­andi Brims.

Kaup­höllin vís­aði mál­inu í kjöl­far til Við­ur­laga­nefndar sinnar á þeim grund­velli að Brim hefði brotið reglur. Við­ur­laga­nefndin, sem skipuð er af stjórn Nasdaq Iceland hf., sam­anstendur af þremur óháðum sér­fræð­ingum. Nefnd­ar­menn eru Eyvindur G. Gunn­ars­son, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands (for­maður), Katrín Ólafs­dóttir, PhD í hag­fræði og dós­ent við Háskól­ann í Reykja­vík og Sigríður Rafnar Pét­urs­dóttir, lög­fræð­ingur hjá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu.

Í úrskurði nefnd­ar­innar segir að eng­inn vafi leiki á því að „við­skiptin, sem að framan er lýst, eru milli nátengdra aðila í skiln­ingi ákvæð­is­ins og bar útgef­anda að upp­lýsa um mót­að­ila við­skipt­anna í til­kynn­ingu sinni dags. 2. júlí 2020. Um ræðir kaup á 16,5% eign­ar­hluta í APF og verður að mati Við­ur­laga­nefndar ekki hjá því kom­ist að horfa til þess að við­skiptin með eign­ar­hluti ÚR í APF voru hluti af stærri fjár­fest­ingu útgef­anda á Græn­landi sem nam 85 millj­ónum evra sam­kvæmt til­kynn­ingu félags­ins hinn 2. júlí 2020. Ekki verður fall­ist á að við­skiptin hafi verið minni­háttar.“

Brot sem eru „ávallt í eðli sínu alvarleg“

Við­ur­laga­nefndin telur því ljóst að Brim hafi með hátt­semi sinni brotið gegn ákvæðum í reglum Kaup­hall­ar­innar um upp­lýs­inga­skyldu. Í nið­ur­stöð­unni segir m.a.: „Hafa verður í huga að mark­miðið með reglum um upp­lýs­inga­skyldu er að tryggja að fjár­festar hafi á hverjum tíma jafnan aðgang að nýj­ustu upp­lýs­ingum sem nauð­syn­legar eru til að geta myndað sér skoðun á þeim fjár­fest­ing­ar­kostum sem í boði eru. Brot á þeim reglum eru því ávallt í eðli sínu alvar­leg.“

Rétt þótti að áminna Brim opin­ber­lega fyrir umrætt brot.

Í skrif­legri yfir­lýs­ingu frá Friðriki Frið­riks­syni, reglu­verði Brims, sem Kjarn­anum barst í dag kemur fram að félagið við­ur­kenni yfir­sjón í mál­inu. Í úrskurði nefnd­ar­innar komi fram að félagið fall­ist á að upp­lýs­inga­gjöfin hefði mátt vera skýr­ari. Hann telur nefnd­ina við­ur­kenna þau sjón­ar­mið Brims að hún hafi ekki verið vill­andi.

Sú ályktun er dregin út frá því að í málsvörn félags­ins var því haldið fram að ekki ætti að beita það öðrum við­ur­lögum en áminn­ingu þar sem aðrir fjár­festar hefðu hvorki gert athuga­semdir né sent fyr­ir­spurn um málið. Þar sem við­ur­laga­nefndin hefði látið nægja að áminna Brim, en ekki beita félagið frek­ari við­ur­lögum, þá telur Brim að hún hafi fall­ist á sjón­ar­mið sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár