Samkeppniseftirlitið rannsakar viðskipti stærsta eiganda Brims og tengdra aðila

Rann­sakað verður hvort að til­tekin við­skipti stærsta eig­anda Brims og tengdra aðila í Brimi hafi falið í sér að mögu­lega hafi verið fram­kvæmdur sam­runi.

Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur og var forstjóri Brims þar til í síðustu viku.
Guð­mundur Krist­jáns­son er aðal­eig­andi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur og var for­stjóri Brims þar til í síð­ustu viku. Mynd: Brim

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur til­kynnt Brimi hf., sem er skráð á íslenskan hluta­bréfa­markað, að það muni hefja sjálf­stæða rann­sókn á því hvort stofn­ast hafi til yfir­ráða Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hf. og tengdra aðila í Brimi vegna til­tek­inna við­skipta Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hf. og tengdra aðila á árinu 2019 með eign­ar­hluti í Brimi. Að mati eft­ir­lits­ins voru þessi við­skipti „til þess fallin að hafa áhrif á mat á yfir­ráðum í félag­inu í skiln­ingi sam­keppn­islaga. Í þessu máli yrði tekin afstaða til þess hvort að við mögu­lega myndun yfir­ráða í Brimi hafi verið fram­kvæmdur sam­runi af hálfu aðila í and­stöðu við 3. mgr. 17. gr. a sam­keppn­islaga.“

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Brimi til Kaup­hallar Íslands. Þar kemur einnig fram að tíð­indin af rann­sókn­inni hefðu verið boðuð í ákvörðun eft­ir­lits­ins varð­andi kaup Brims á Fisk­vinnsl­unni Kambi hf. og Grábrók ehf. sem var til­kynnt Brim í gær­kvöldi.

Hætti í síðustu viku

Brim er sú útgerð sem heldur á mestum kvóta allra á Íslandi, eða 10,13 pró­sent. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem á 44,65 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ild­um. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­son­ar,. Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögur­vík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi hópur útgerða sem tengj­ast Guðmundi er því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. 

Guð­mundur var ekki ein­ungis aðal­eig­andi stærsta eig­anda Brims. Hann var líka for­stjóri félags­ins frá því í júní 2018 og þangað til í síð­ustu viku. Þá til­kynnti hann um að hann myndi láta af störfum sem for­stjóri af per­sónu­legum ástæðum. Guð­mundur situr þó enn í stjórn Brims.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár