Lilja Alfreðsdóttir komin með efnahagsráðgjafa

Jón Þ. Sig­ur­geirs­son hefur verið ráð­inn til menn­ingar og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins. Á meðal hans helstu verk­efna verður að veita ráð­herra við­skipta ráð­gjöf í efna­hags­málum.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar og viðskiptaráðherra.
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir menn­ingar og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þ. Sig­ur­geirs­son hefur tekið til starfa í menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu, en á meðal hans helstu verk­efna verður að veita Lilju Dögg Alfreðs­dóttur ráð­herra menn­ingar og við­skipta­mál ráð­gjöf í við­skipta- og efna­hags­málum, ásamt því að sinna mál­efnum Norð­ur­slóða.

Frá þessu er sagt í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu í dag. Þar kemur fram að Jón hafi starfað um ára­bil í Seðla­banka Íslands, meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stjóri alþjóða- og mark­aðs­sviðs frá 2001-2006 og síðar sem fram­kvæmda­stjóri skrif­stofu banka­stjóra og alþjóða­sam­skipta á árunum 2008-2019.

Jón hefur einnig starfað hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum í Washington, en þar starf­aði hann sem full­trúi Norður- og Eystra­salts­landa í stjórn sjóðs­ins um nær átta ára skeið, eða þar til í upp­hafi þessa árs.

Hann var jafn­framt stjórn­ar­maður í grísku banka­sýsl­unni í fimm ár þegar unnið var að end­ur­reisn gríska banka­kerf­is­ins.

Einnig sat Jón um skeið í stjórn Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eftir fall íslensku bank­anna og þá var hann einnig stjórn­ar­for­maður eigna­safns Seðla­banka Íslands og sat í fram­kvæmda­nefnd um afnám gjald­eyr­is­hafta, sam­kvæmt því sem segir í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár