Leiðtogar framtíðarinnar alast upp í sama hverfi í Stokkhólmi

Margir hafa þá mynd af Svíþjóð að hún sé stétt­laust land. Hér er ekki bara áhersla á jöfnuð heldur hefur jantelagen, eins og það er kallað í Svíþjóð, haft mikil áhrif. Grunn­hugmyndin var að allir hefðu sömu tækifæri en um leið voru þeir litnir hornauga sem gerðu mikið úr sjálfum sér eða gortuðu af eigin afrekum. Engu að síður er mjög áhrifa­mikil yfirstétt í landinu sem hefur meiri auð milli handanna en flestir geta ímyndað sér.

Þótt ríkustu Svíarnir dreifist vissulega um landið má segja að rjóminn af yfir­stéttinni hafi nánast tekið yfir heilt hverfi í útjaðri Stokk­hólms. Á Djursholm búa um níu þúsund manns og þar eru teknar ákvarðanir sem ráða miklu um örlög þjóðarinnar.

Rannsakaði Djursholm í mörg ár


Nýlega kom út löng og mikil bók sem fjallar um hverfið og íbúa þess. Höf­und­ur­inn er Mikael Holmqvist, pró­fessor í við­skipta­fræði og leið­toga­fræðum við Stokk­hólms­há­skóla. Hann nýtir sér ekki bara töl­fræði og opin­berar upp­lýs­ingar um hverfið heldur hefur hann fylgst með því í mörg ár auk þess sem hann tók við­töl við um tvö hund­ruð íbúa þess. Mikael segir að þarna búi fólk sem telji sig ein­fald­lega hafa meiri og betri kosti en annað fólk, hvort sem er út frá fag­ur­fræði­legum eða sið­ferð­is­legum for­sendum. En þetta er líka byggð sem þrífst á eins­leitni og nauð­syn þess að allt sé slétt og fellt á yfir­borð­inu.

Á Djursholm eru allir glaðir, sólbrúnir og í góðu formi. Hverfis­búðin selur minna af gosi og snakki en í öðrum hverfum en neysla á bæði Pensilíni og Viagra er meiri því hér má enginn vera veikur og allir eru til í tuskið. Vandamál eru aldrei rædd opinber­lega heldur fara þau öll í gegnum lögfræðinga. Kvartanir til lögreglu eru fjölmargar og kærur fljúga á milli granna um leið og þeir brosa hver til annars yfir grind­verkið. Íbúarnir ganga mjög langt í viðleitni sinni til að vernda eins­leitnina og þótti heimili fyrir fjóra fatlaða einstaklinga til dæmis vera ógn við hverfið.

Þjónustufólk á hverju strái


Hluti af lífstíl þeirra sem búa á Djurs­holm felst í því að hafa þjón­ustu­fólk til að sinna flestum störfum heim­il­is­ins. Garð­yrkju­menn og heim­il­is­hjálp sjá til þess að allt sé slétt og fellt á yfir­borð­inu, þótt reyndar sé þjón­ustan nið­ur­greidd af skatt­borg­urum vegna reglna um skatta­frá­drátt. Hug­myndin um þjón­ustu­fólk nær þó mun lengra. Starfs­menn í búðum, á bóka­söfnum og jafn­vel stjórn­mála­menn eru ekk­ert annað en þjón­ustu­fólk í augum íbú­anna.

Þegar stjórn­málamaður tekur ákvörðun sem fellur ekki í kramið fær hann símtöl og bréf frá lögfræðingum. Oftar en ekki er þá brugðið til þess ráðs að skella skuldinni á opinberan starfs­mann sem á erfitt með að verja sig. Að sjálfsögðu eru svo ráðnar barn­fóstrur inn á heimilin og skiptir þá litlu máli þótt móðirin sé heima­vinnandi. Hér er það gamaldags viðhorf sem ræður. Karlinn vinnur úti og óhugsandi er að hann sé heima­vinnandi. Á Djursholm er heldur enginn opinber­lega samkyn­hneigður í hverfi þar sem Kristilegir Demó­kratar geta treyst á meira fylgi en víðast annars staðar. Hér gildir að eiga börn og þau eru miskunnar­laust notuð sem skipti­mynt í valda­tafli.

Hærra hlutfall lesblindra en víðast annars staðar


Þegar barn úr „merki­leg­ustu“ fjöl­skyld­unum hefur skóla­göngu fær skóla­stjór­inn tugi sím­tala og bréfa þar sem for­eldrar krefj­ast þess að sitt barn gangi í sama bekk. Nýjasta dæmið um þetta er Estelle prinsessa, dóttir Viktoríu krón­prinsessu, sem nýlega hóf skóla­göngu í hverf­inu. Á Djurs­holm vita menn að vin­skapur við verð­andi drottn­ingu getur skipt höf­uð­máli í fram­tíð­inni. Börnin skulu þess vegna leggja sitt af mörkum til að stækka net­verkið með því að kynn­ast rétta fólk­inu. Til þess að það tak­ist dugir ekk­ert annað en afburða árangur í skóla. Þau börn sem grein­ast með ein­hverja röskun geta átt von á því að reiðir for­eldrar berj­ist fyrir því að þau séu flutt í aðra bekki eða skóla.

Estelle prinsessa ásamt móður sinni, Viktoríu krónprinsessu. Mynd: EPA

Estelle prinsessa ásamt móður sinni, Viktoríu krónprinsessu. Mynd: EPA
Estelle prinsessa ásamt móður sinni, Viktoríu krón­prinsessu. Mynd: EPA

Eftir grunn­skóla skulu Djursholms-börnin ganga í Viktor Rydbergs mennta­skólann. Skólinn er með hæstu meðal­einkunn í landinu þrátt fyrir að nemendurnir mælist rétt um meðallag í lands­prófum. Há meðal­einkunn er nefnilega það eina sem gildir til að komast inn í Viðskipta­háskólann í Stokk­hólmi og þess vegna líta foreldrarnir á háar einkunnir sem sjálfsagðan rétt barnanna. Ef þær lækka eru kennararnir kallaðir á teppið og þeir krafðir svara um það hvers vegna þeir standi sig ekki gagnvart börnunum.

Nemendur sem ekki ná tilsettri einkunn eru sumir hverjir sendir í Lundsberg heimavistar­skólann sem var lokað tíma­bundið árið 2013 eftir gróft einelti og ofbeldi sem tengdist innvígslu nýrra nemenda. Önnur lausn er að fá lesblindu­greiningu en hlutfall lesblindra á Djursholm er marktækt hærra en annars staðar. Kosturinn við slíka greiningu er að þá taka nemendurnir munnleg próf. Frá unga aldri eru þau vanin við að halda fyrir­lestra og í raun má segja að það skipti þau minna máli að þekkja tiltekið efni nákvæmlega en að geta skilað því frá sér á réttan hátt. Allt snýst um fram­setningu og leiðtoga­hæfni.

Þótt börnin hafi aðgang að öllum hugsanlegum lífsgæðum og verði líklega leiðtogar fram­tíðarinnar í Svíþjóð skortir þau þekkingu á lífinu utan hverfisins. Þess vegna sér skólinn um að kynna þau fyrir hlutum eins og að fara í strætó eða neðan­jarðarlest. Mörg barnanna tala líka um að þau fái litla athygli frá foreldrum sem séu upptekin við vinnu og ferðalög. Faðmlög og væntumþykja koma því frekar frá barn­fóstrum og þjónustu­fólki.

Fáir frumkvöðlar í hverfinu


Þeir sem hafa áhuga á að kom­ast inn í sam­fé­lagið á Djurs­holm þurfa að vera mold­ríkir. Algengt verð á fast­eign er um hálfur millj­arður íslenskra króna en dýr­ustu húsin kosta rúman millj­arð. Reyndar eru mörg heim­ili skuld­sett upp í topp og því lifir fólk stans­laust á brún­inni. Pressan að standa sig hefur gríð­ar­leg áhrif og mis­tök eru ekki leyfð. Hugs­an­lega er það þess vegna sem fólk á Djurs­holm forð­ast frum­kvöðla­starf eða nýsköpun.

Í stað þess að veðja á eitthvað nýtt gengur fólk inn í rótgróin fyrirtæki sem oft eru í eigu foreldra eða fjöl­skyldu. Menningar­lífið á alltaf sína fulltrúa á Djursholm enda þykir það fínt. Annars búa þarna forstjórar fyrir­tækja, fjármála­jöfrar og svo auðvitað fulltrúar ríku ættanna eins og Wallenberg fjöl­skyldunnar.

Líkurnar á því að þeir sem alast upp á Djursholm verði leiðtogar eru miklar. Hér er rjóminn af elítunni, valda­samfélag sem á engan sinn líkan í Svíþjóð. Hins vegar hljóta að vakna spurningar um það hversu gott það er fyrir samfélag ef því er stjórnað af litlum hópi sem elst upp í sama hverfi með mjög ákveðið gildismat. Sérstak­lega þegar hópurinn telur sig betri en aðra og lítur niður á þá sem ekki búa við sömu lífsgæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár