Partýblöðrur og helíumskortur

Yfir 10% af árlegri fram­leiðslu á helíum fer í að blása upp blöðrur.

Fyrir mörgum eru helíum­blöðrur hluti af hefðinni þegar haldið er upp á þjóð­hátíðardag okkar Íslendinga. Bærinn fyllist af börnum sem allir hafa sína blöðru sem svífur um götur borgarinnar og sumar sjást jafnvel hátt upp í lofti eftir að þær komust undan eiganda sínum. Þá hafa vinsældir svokallaða kynja­veislna aukist og þar að leiðandi blöðru­notkun.

Ástæðan fyrir því að þessar blöðrur eru umdeildar er ekki bara plastið sem þær eru gerðar úr, heldur er það loft­tegundin helíum sem þær innihalda. Það sem fæstir mögulega vita er að helíum er mjög takmörkuð auðlind, það er bara til ákveðið magn af því hér á jörðinni. Helíum er næst­léttasta frumefnið en þrátt fyrir að vera eitt af algengustu frumefnum alheimsins er helíum aðeins til í takmörkuðum mæli hér á jörðinni og það er eitt fárra frumefna sem leka úr lofthjúpi jarðar og út í geim þegar það er notað. Það er því ekki sjálfbært. Yfir 10% af árlegri fram­leiðslu á helíum fer í að blása upp blöðrur.

Sjúkrahús geta ekki verið án helíum

Fyrir flestum er helíum sennilega þekktast fyrir að vera notað í blöðrur. En það er óvíst hversu margir átti sig á í raun hversu dýrmæt og mikilvæg loft­tegundin er. Aðal­notkun helíums í heiminum er í heilbrigðis­geiranum, til dæmis er helíum notað til kælingar á segul­ómunartæki á sjúkra­húsum, við meðferð á asma, skurð­lækningar og margt fleira.  Þá er helíum einnig notað í fjölda af öðrum hlutum sem eru mikil­vægir, eins og við fram­leiðslu á ljós­leiðara, á rannsóknar­stofum, í elds­neytistönkum geim­flauga, kæli­miðill við fram­leiðslu hálf­leiðara og í kjarna­ofnum svo fátt eitt sé nefnt. 

Heimskortur veldur verðhækkunum

Á undan­förnum árum hafa birgðir á þessari mikilvægu loft­tegund farið töluvert minnkandi með hverju árinu sem líður. Árið 2013 varð fyrsti mikli skorturinn á helíum, skorti sem vísinda­menn um allan heim voru búnir að vara við í mörg ár og hafði hann áhrif víða um heim. Það ár fjölluðu helstu fjöl­miðlar landsins um þennan skort hér á Íslandi og var það þá aðal­fréttin að ekki yrði hægt að fá helíum­blöðrur þann þjóð­hátíðardag eða í veislurnar. Ástandið var alvarlegt og þurfti að forgangs­raða kaupendum eftir mikilvægi. Hundruð vísinda­manna þurftu að hætta rann­sóknum sínum vegna skortsins og gátu margir spítalar ekki nálgast efnið. Þar sem framboðið dugaði ekki til að sinna eftir­spurninni þá hækkaði verðið umtals­vert. Á undan­förnum 15 árum hefur verð á helíum hækkað um 500%, hækkun sem heilbrigðis­stofnanir og vísinda­menn þurfa að borga. 

Óvíst hvenær hægt verði að skipta út helíum

Helíum er að stærstum hluta ekki sérstak­lega framleitt heldur er það aukaafurð sem kemur þegar er verið að ná í jarðgas eða olíu úr jörðinni. Afar fá svæði hafa helíum í vinnanlegu magni og fer um 75% af vinnslu alls helíums­framleiðslu í heiminum fram í Banda­ríkjunum. Þá er mjög erfitt að nálgast helíum. Uppsprettur eru mjög sjaldgæfar og finnast á einstökum svæðum í Banda­ríkjunum, Kanada, Póllandi, Rússlandi og Tansaníu. Suðumark helíums er nálægt alkuli eða -267 °C og er efnið í fljótandi formi besta kæliefni heims, og enn er ekki séð fram á hvernig skipta megi efninu út fyrir aðra kælimiðla, tæknin er einfald­lega ekki til í dag og segja vísinda­menn að langt sé í land að finna aðra tækni, á meðan þurfa þeir á helíum að halda.

Vilja banna helíumblöðrur

Vegna þessa hafa því vísinda­menn um allan heim lagt fram þá kröfu að bann verði lagt við að nota þessa mikilvægu, og dýrmætu loft­tegund, við að fram­leiðsla blöðrur. Margar borgir, víðsvegar um heiminn, hafa hlustað á vísinda­menn og lagt alfarið bann við helíublöðrum. Árið 2017 lagði Umhverfis- og framkvæmdarráð Hafnar­fjarðar­bæjar fram að Hafnar­fjarðarbær og stofnanir hans hætti að nota blöðrur með helíum. Ekkert bann var þó sett á, heldur voru þetta eingöngu vinsamleg tilmæli. 

Að sögn vísinda­manna mun bann við helíum­blöðrum ekki eingöngu hjálpa við að minnka notkun á helíum um heim allan, heldur mun það bjarga hundruð þúsunda fugla og sjávar­dýra árlega. Blöðrurnar eru nefnilega flest allar fram­leiddar úr latex­blöndu eða úr þunnri pólýester­filmu úr plasti.  Plastið í blöðrunum ógnar dýrum þegar þau flækjast í því og kafna og svo vegna plastagna sem dýrin borða. Flestar lífverur sem taka inn í sig plast eiga í erfið­leikum með að losa sig við það.

Plastagnir finnast í fiskum og fuglum á Íslandi.

Plast­agnir eru að finnast í fiskum og fuglum við strendur landsins. Samkvæmt rannsókn Anne de Vries, nema í haf- og strandsvæða­stjórnun við Háskóla­setur Vestfjarða, kom í ljós að 20,5% af öllum veiddum þorski á Íslandi innihélt plast­agnir og 17,4% af öllum ufsa innihélt plast­agnir. Samkvæmt rannsókn, sem Aðalsteinn Örn Snæþórsson, líffræðingur hjá Náttúru­stofu Norð­austurlands, framkvæmdi, reyndist 70% fýla sem hann rann­sakaði vera með plast í maganum. Þá hafa rann­sóknir á maga­innihaldi hvala sem hafa rekið á land sýnt fram á gífurlegt magn af plasti. Rann­sóknir á kræklingum við strendur Íslands sýna einnig að meira en helmingur þeirra innihalda plast­agnir. Agnir sem enda svo á diskum lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár