Heimilislaus með ígerð í báðum handleggjum - „Þú veist hvernig þetta er“

Njáll Skarp­héð­ins­son er þreyttur á því að vera heim­il­is­laus. Hann þráir að vera í stöðu til að hitta börnin sín og barna­börn, að bjóða þeim í heim­sókn. Nýverið bland­aði hann sér óvænt í mót­mæli á Aust­ur­velli þar sem fólk gaf honum pen­ing til að fara. Pen­ing­inn ætl­aði hann að nota til að kaupa dóp. „Ég er að verða örmagna,“ segir hann.

Njáll Skarphéðinsson er 62 ára gamall og á hvergi heima.
Njáll Skarp­héð­ins­son er 62 ára gam­all og á hvergi heima. Mynd: EH

„Ég er ekki búinn að fara í bað í marga mán­uði. Þegar maður býr í gisti­skýl­inu er maður oft svo búinn á því. Ég meika ekki einu sinni að éta,“ segir Njáll Skarp­héð­ins­son sem er heim­il­is­laus. Hann er staddur á Aust­ur­velli sem oftar, og bendir á stytt­una af Jóni Sig­urðs­syni með orð­unum: „Hann sagði: „Hér stend ég og get ekki annað.“ En ég stend hér og get annað,“ segir Njáll. 

Honum er mikið niðri fyrir. Heldur á bjór og sígar­ettu. Kappið hefur þó borið hann ofur­liði þennan dag því það var alls ekki Jón Sig­urðs­son, bar­áttu­maður fyrir sjálf­stæði Íslend­inga hvers fæð­ing­ar­dagur var síðar gerður að þjóð­há­tíð­ar­degi, sem sagði þetta heldur Marteinn Lúther, sá er lút­erska kirkjan er kennd við. Það var árið 1521 sem þýski munk­ur­inn Marteinn Lúther kom fyrir þingið í Worms, mælti fyrir sið­bót sinni og sagði: „Hér stend ég og get ekki annað, svo hjálpi mér …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár