Rúmur hálfur milljarður í utanlandsferðir þingmanna og forseta þingsins á tíu árum

Rúmar 60 millj­ónir fóru í utan­lands­ferðir emb­ættis for­seta Alþingis og þing­manna árið 2018. Kostn­að­ur­inn var minnstur árið 2009 – rétt eftir hrun.

Embætti for­seta Alþingis og þing­menn eyddu mestu í utan­lands­ferðir árið 2015 á tíma­bil­inu 2009 til 2018 en þá var kostn­aður vegna þeirra rúmar 74 millj­ónir króna. Samtals er kostn­aður vegna utan­lands­ferða þing­manna á vegum þings­ins og emb­ættis for­seta Alþingis rúmar 557 millj­ónir króna á þessu tíu ára tíma­bili. Minnstur var kostn­að­ur­inn árið 2009 þegar hann nam 32,5 millj­ónum króna.

Þetta kemur fram í svari Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, for­seta Alþingis, við fyr­ir­spurn frá Þor­steini Víglunds­syni, þing­manni Við­reisnar, um kostnað vegna utan­lands­ferða þing­manna og for­seta þings­ins.

Þor­steinn spurði hver kostn­aður Alþingis hefði verið síð­ast­liðin 10 ár, sund­ur­liðað eftir árum, ann­ars vegar vegna utan­lands­ferða þing­manna á vegum þings­ins og hins vegar utan­lands­ferða emb­ættis for­seta Alþingis.

Yfir­litið sýnir kostnað við ferðir þing­manna og emb­ættis for­seta Alþingis og eru upp­hæðir á verð­lagi hvers árs. Undir kostnað við ferðir þing­manna fellur jafn­framt kostn­aður við ferðir starfs­fólks sem fylgja þing­mönnum. Þá fellur jafn­framt undir kostnað við ferðir á vegum emb­ættis for­seta allur kostn­aður við ferðir þeirra þing­manna sem eru í fylgd með for­seta ásamt starfs­fólki sem er með í ferð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár