Aðgerðir stjórnvalda vel viðunandi

Stjórn­völd hafa ekki tekið afdrátta­lausa afstöðu til allra tillagna starfs­hóps um eflingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu en þó eru aðgerðir þeirra vel viðunandi, samkvæmt Siðfræði­stofnun.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Siðfræði­stofnun Háskóla Íslands hefur skilað Katrínu Jakobs­dóttur, forsætis­ráðherra, framvindu­skýrslu um innleiðingu tillagna starfs­hóps um eflingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu. Í skýrslunni er lagt mat á árangur og viðleitni stjórn­valda til þess að mæta tillögum starfs­hópsins. Þetta kemur fram á vef Stjórnar­ráðsins í dag.

Siðfræði­stofnun telur tillögur starfs­hópsins vel ígrundaðar og rökstuddar. Stjórn­völd hafi nú þegar tekið skref að markmiðum sem heyra undir fimm af þeim átta megin­sviðum sem skilgreind eru í skýrslu starfs­hópsins. Þá er það mat Siðfræði­stofnunar að frumvörp forsætis­ráðherra í mála­flokknum feli í sér veiga­miklar umbætur verði þau öll að lögum.

Vilja að aukin sé símenntun á „sviði opinberra heilinda“

Samkvæmt Siðfræði­stofnun eru aðgerðir stjórn­valda þannig vel viðunandi. Þó sé nauðsynlegt að leiða til lykta þá vinnu sem komin er á veg en er ólokið og hefja jafnframt undir­búning að verkefnum sem setið hafa á hakanum.

„Þau atriði sem út af standa og hafa fengið litla athygli hingað til eru ekki síður mikilvæg, en þau krefjast ekki sérstakrar laga­setningar heldur fyrst og fremt vilja og festu. Ekkert er því til fyrir­stöðu að setja skýr markmið og gera áætlanir um endur­skoðun og umgjörð siða­reglna, aukna símenntun á sviði opinberra heilinda og eflingu gagn­rýninnar umræðu. Þó ber að taka fram að ráðuneytið er fáliðað í þessu verkefni og spyrja má hvort ekki væri rétt að bæta úr því,“ segir í skýrslunni.

Stjórnvöld skilgreini hvaða markmið þau ætli að setja sér

Í niður­stöðum skýrslunnar kemur jafnframt fram að rétt sé að árétta að stjórn­völd hafi ekki tekið afdráttar­lausa afstöðu til allra tillagna starfs­hópsins. Æskilegt sé að stjórn­völd skilgreini með skýrum hætti hvaða markmið þau ætli að setja sér og geri grein fyrir skuld­bindingu sinni í þágu opinberra heilinda. „Í ljósi ættu stjórn­völd að setja fram stefnu­skjal, eða móta heilindaramma, sem lýsir markmiðum um heilindi. Siðfræði­stofnun leggur til að þetta verkefni verði sett í forgang á næstu misserum,“ segir í skýrslunni.

Starfs­hópur forsætis­ráðherra um eflingu trausts á stjórn­málum og stjórn­sýslu skilaði skýrslu sinni í september árið 2018. Í skýrslunni voru settar fram tillögur að aðgerðum sem skipt var í átta meginsvið og 25 afmarkaðar tillögur. Í desember sama ár gerði forsætis­ráðuneytið samning við Siðfræði­stofnun Háskóla Íslands um að stofnunin yrði stjórn­völdum til ráðgjafar í siðfræði­legum efnum og ynni með stjórn­völdum að eftir­fylgni og innleiðingu tillagna starfs­hópsins.

Á vef Stjórnar­ráðsins kemur fram að þegar hafi eitt frumvarp forsætis­ráðherra orðið að lögum, en breytingar á upplýsinga­lögum sem fólu í sér útvíkkun gildis­sviðs laganna og betra aðgengi almennings að upplýsingum tóku gildi um mitt síðasta ár. Að auki hafi forsætis­ráðherra mælt fyrir frumvarpi til laga um vernd uppljóstrara og frumvarpi til laga um varnir gegn hagsmuna­árekstrum hjá æðstu handhöfum framkvæmdar­valds í Stjórnar­ráði Íslands og séu þau nú í meðförum þingsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár