Kínverjar fella gengið og hrista upp í mörkuðum um allan heim

Kínverjar felldu í dag gengi gjald­miðil landsins, kínverska júnaið, annan daginn í röð í því skyni að auka virði útflutnings­afurða. Kínverski Seðla­bankinn hefur ekki fellt gengið svona duglega í tvo áratugi, eða frá því árið 1994.

Stefnu­breyting Kínverja kom á óvart og hafa verðbréfa- og gjaldeyris­markaðir víða um heim, einkum í Asíu, fengið á sig skell. Gengis­fellingin bjó víða til sölu­þrýsting á hlutabréfa­mörkuðum og helstu vísitölur lækkuðu um allt að þrjú prósent á mörkuðum í Asíu. Þróunin hefur víðast verið í sömu átt, bæði á mörkuðum í Evrópu og í Banda­ríkjunum, og er helst rakið til gengis­fellingar Kínverja.


Í umfjölliun BBC er farið yfir mögulega sigurvegara og tapara gengis­fellingarinnar. Þeir sem eru sagðir munu hagnast eru meðal annars kínverskir útflutnings­aðilar og ferðamenn á leið til Kína. Veikara júan mun aftur á móti hækka kostnað margra kínverskra fyrir­tækja í formi hærri vaxta á erlendum skuldum, ekki síst hjá fjármála­fyrirtækjum, auk þess sem flutnings­aðilar á borð við flugfélög og skipa­félög munu tapa vegna dýrari kaupa á olíu í dollurum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár