Heilbrigðisráðuneyti Willums Þórs segir þagnarskyldu ríkja á aðstoðarmanninum

Aðstoð­ar­maður Willums Þórs Þórs­sonar réði sig til einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar nú í nóv­em­ber. Ráðu­neytið segir að aðstoð­ar­mað­ur­inn, Guðrún Ása Björns­dóttir, sé bundin þagn­ar­skyldu um störf sín í ráðu­neyt­inu jafn­vel þó hún sé hætt þar.

Ráðuneytið segir þagnarskyldu hvíla á aðstoðarmönnum
Ráðu­neytið segir þagn­ar­skyldu hvíla á aðstoð­ar­mönnum Heil­brigð­is­ráðu­neyti Willlums Þórs Þórs­sonar segir þagn­ar­skyldu hvíla á aðstoð­ar­mönnum ráð­herra eftir að þeir láta af störfum. Aðstoð­ar­maður Willums Þórs, Guðrún Ása Bjarna­dóttir lét nýlega af störfum hjá honum og fór yfir til Klíník­ur­innar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Willums Þórs Þórs­sonar segir að þagn­ar­skylda hvíli á aðstoð­ar­mönnum ráð­herra eftir að þeir láta af störfum. Heim­ildin spurði heil­brigð­is­ráðu­neytið fimm spurn­inga um starfs­lok og vista­skipti aðstoð­ar­manns Willums Þórs, Guðrúnar Ásu Björns­dóttur, nú í nóv­em­ber. Guðrún Ása réði sig til einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­is­ins Klíník­ur­innar. Ráðu­neytið svar­aði hins vegar ekki spurn­ingum Heim­ild­ar­innar nema að hluta til. 

Í lok svars ráðu­neyt­is­ins segir um þagn­ar­skyld­una sem hvílir á henni: „Þá er rétt að vekja athygli á því að í 1. mgr. 5. gr. laga nr. 64/2020, um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands, og í 42. gr. stjórn­sýslu­laga nr. 37/1993, er kveðið á um þagn­ar­skyldu starfs­manna, þ.m.t. aðstoð­ar­manna ráð­herra, sem helst þótt látið sé af starfi.“

Ein af spurn­ing­unum sem ráðu­neytið svar­aði til dæmis ekki er hvort það sjái ein­hverja van­kanta eða ágalla á því að aðstoð­ar­maður ráð­herra ráði sig svo snögg­lega til einka­rek­ins heil­brigð­is­fyr­ir­tækis og raun ber vitni í til­felli Guðrúnar Ásu. 

„Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru eðli máls­ins sam­kvæmt ráðnir póli­tískt og sinna póli­tískum störfum í umboði ráð­herr­ans og búa þess vegna yfir upp­lýs­ingum og kontöktum sem ekki er víst að aðrir byggju yfir.“
Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir,
for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis

Sat fundi með stjórnendum Landspítalans

Guðrún Ása mun hefja störf sem fram­kvæmda­stjóri hjá Klíník­inni í byrjun næsta árs, innan við tveimur mán­uðum eftir að hún lét af störfum hjá ráð­herra. Miðað við svar ráðu­neyt­is­ins má hún ekki nýta neinar upp­lýs­ingar sem hún komst yfir í ráðu­neyt­inu í starfi sínu hjá Klíník­inni. 

Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, hefur sagt að fyrir henni líti vista­skipin ein­kenni­lega út. „Mér finnst þetta orka tví­mælis. Aðstoð­ar­menn ráð­herra eru eðli máls­ins sam­kvæmt ráðnir póli­tískt og sinna póli­tískum störfum í umboði ráð­herr­ans og búa þess vegna yfir upp­lýs­ingum og kontöktum sem ekki er víst að aðrir byggju yfir. Mín skoðun er að huga þurfi betur að þessu: Þannig að aðstoð­ar­menn ráð­herra geti ekki farið beint í eitt­hvert slíkt starf í sama mála­flokki.“

Heim­ildin hefur meðal ann­ars upp­lýs­ingar um að Guðrún Ása hafi setið fundi með yfir­lækni bækl­un­ar­skurð­deildar Land­spít­al­ans, Hirti Friðriki Hjart­ar­syni, í krafti starfs síns sem aðstoð­ar­maður. Klíníkin gerði fyrr á árinu um samn­ing um að gera lið­skipta­að­gerðir með þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands í fyrsta skipti og hefur verið gefið út að annar samn­ingur verði gerður við Klíník­ina fyrir næsta ár. 

Vistaskipti á krítískum tíma

Um þessar mundir ráð­gerir heil­brigð­is­ráðu­neytið að útvista enn frek­ari aðgerða­formum til einka­að­ila eins og Klíník­ur­innar með greiðslu­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands.

Viskipta­skipti Guðrúnar Ásu eiga sér því stað á krítískum tíma þar sem upp­lýs­ingar um rík­is­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu sem liggja fyrir í ráðu­neyt­inu geta verið mik­il­vægar fyrir einka­að­ila eins Klíník­inni sem vilja gera fleiri aðgerðir með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. 

Ekkert í gildandi bannar vistaskiptin

Engin ákvæði í gild­andi lögum um hags­muna­á­rekstra æðstu starfs­manna stjórn­ar­ráðs­ins banna slík vista­skipti aðstoð­ar­manna ráð­herra yfir til einka­rek­inna fyr­ir­tækja sem starfa á mál­efna­sviði ráð­herr­ans sem þeir störf­uðu undir. Í til­felli ráð­herra sjálfs, ráðu­neyt­is­stjóra og skristofu­stjóra í ráðu­neytum þá þurfa þeir að bíða í sex mán­uði eftir að þeir láta af störfum í ráðu­neytum áður en þeir ráða sig til einka­að­ila á sama sviði. Á meðan eiga þeir rétt á bið­launum.

Ákveðið var að aðskilja aðstoð­ar­menn ráð­herra frá þessum hópi í lögum sem sett voru á Alþingi á síð­asta kjör­tíma­bili.Þess vegna getur Guðrún Ása ráðið sig í starfið hjá Klíník­inni án þess að þurfa að bíða í sex mán­uði líkt og gildir um ráð­herra sem og ráðu­neytis- og skrif­stofu­stjóra. 

 

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár