Ætla að hjálpa íslenskum sprotum að vaxa og dafna

Aðstand­endur Iceland Venture Studio ætla sér vinna með íslenskum og erlendum frumkvöðlum á sviði tækni.

Hið nýstofnaða fjár­festinga­fyrirtæki Iceland Venture Studio hefur stofnað 500 milljón króna fjár­festinga­sjóð með það að markmiði að hjálpa íslenskum nýsköpunar­fyrirtækjum á sviði tækni með fjármagn, ráðgjöf og tengingar.

Markmiðið er að hjálpa frumkvöðlum að byggja upp tækni­fyrirtæki sín.

Stofn­endur fjár­festinga­fyrir­tækisins, Bala Kamallakharan og Freyr Ketilsson, eiga einnig sprota­fyrirtækið Dattaca Labs og mun Bala verða framkvæmda­stjóri hins nýja fyrir­tækis og Freyr verður stjórnar­formaður.

Bala er einnig stofnandi og framkvæmda­stjóri Startup Iceland ráðstefnunnar sem hefur hjálpað frumkvöðlum og nýsköpunar­fyrirtækjum við fjár­mögnun í gegnum árin.

„Iceland Venture Studio mun veita nýsköpunar­fyrirtækjum á sviði tækni og vísinda stuðning og hjálpa þeim að komast á næsta stig. Markmiðið verður að hjálpa þeim að leysa þau vandamál sem oft verða til á fyrstu stigum stofnunar, svo sem að brúa bilið milli lausnarinnar og óska neytenda, aðstoða við tæknilega uppsetningu og síðast en ekki síst að tryggja að rétta fólkið sé ráðið á hverjum tíma en þetta hefur reynst mörgum nýsköpunar­fyrirtækjum fjötur um fót í gegnum tíðina. Þekking okkar stofn­endanna og reynsla mun því meðal annars hjálpa þeim fyrirækjum sem við fjár­festum í að lágmarka þessa áhættu,“ segir Bala.

Freyr segir að Iceland Venture verði virkur fjár­festir í þeim fyrir­tækjum sem það fjár­festir í. „Iceland Venture Studio verður ekki hlutlaus fjár­festir, heldur mjög virkur þátt­takandi þar sem stofnendurnir vinna beint með teyminu við að leysa verkefnin sem liggja fyrir,“ segir Freyr.

Fyrir­tækið hefur nú þegar safnað um 137 milljónum króna og er markmiðið að sjóðurinn verði milljarða sjóður innan þriggja ára. Iceland Venture Studio mun ekki einungis fjárfesta í íslenskri nýsköpun heldur mun fyrir­tækið einnig skoða fjár­festinga­tækifæri í nýsköpunar­fyrirtækjum erlendis.

Fjárfest í Retina Risk

Eitt þeirra nýsköpunar­fyrirtækja sem Iceland Venture Studio hefur fjárfest í er Retina Risk sem stofnað var af Einari Stef­ánssyni augnlækni og prófessor við HÍ, Örnu Guðmunds­dóttur lyflækni og Thor Aspelund, faralds­fræðingi og prófessor við HÍ.

Fyrir­tækið hefur sett á markað smáforritið Retina Risk sem er áhættu­reiknir sem gerir fólki með sykursýki kleift að fylgjast með einstaklings­bundinni áhættu á að þróa með sér augn­sjúkdóma sem leitt geta til sjón­skerðingar og jafnvel blindu.

Smáforritið hefur að geyma ítarlegar leið­beiningar og gagnlegar upplýsingar um sykursýki, sykursýkis­augn­sjúkdóma sem og leið­beiningar um sjálfsumönnun. Retina Risk gerir þannig fólki með sykursýki betur kleift að skilja ástand sitt, auka heilsu­læsi sitt og verða virkir þátt­takendur í eigin heilsu­gæslu.

„Við fengum tækifæri til að vinna með fjölmörgum fjár­festum en á endanum varð Iceland Venture Studio fyrir valinu, þá sérstak­lega vegna góðrar blöndu af fjármagni, tengingum og vilja þeirra til að koma til móts við okkar þarfir,“ segir Einar Stef­ánsson, prófessor og meðstofnandi Retina Risk. „Við erum spennt fyrir þessu samstarfi og vitum að það mun verða til þess að Retina Risk nái að vaxa til framtíðar og hjálpa þeim sjúklingum sem lausnin leitast við að aðstoða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár