Burger King vill opna veitingastað með McDonald's og selja McWhopper

Burger King, ein stærsta skyndibita­keðja heims, hefur farið þess á leit við helsta keppinaut sinn, McDonald's, að keðjurnar opni saman veitingahús. Í heilsíðu­auglýsingum á síðum bandarísku dagblað­anna The New York Times og The Chicago Tribune í dag leggur Burger King til að opnaður verði staður sem selur hamborgara að nafni McWhopper. Hann á að vera blanda af vinsælustu hamborgurum keðjanna, Big Mac og Whopper.

Allur ágóði af sölu McWhopper hamborgara á að renna til góðgerðar­samtakanna Peace One Day. Þau hafa það að markmiði að vekja athygli á Alþjóð­lega friðar­deginum, sem komið var á fót af Allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna árið 1981. Í tilefni af Alþjóð­lega friðar­deginum þann 21. september næst­komandi vill Burger King opna sameiginlegan veitinga­stað með McDonalds í einn dag. Samkvæmt tillögu Burger King verður hann stað­settur á bílastæði milli staðanna tveggja í Atlanta í Banda­ríkjunum.

„Friðar­tillaga“ Burger King er nánar útlistuð á sérstakri heimasíðu, Mcwhopper.com.

Í umfjöllun New York Times um málið í dag segir að stjórn­endur Burger King hafi ekki viljað hafa neitt eftir sér við vinnslu fréttarinnar og talsmenn McDonalds neituðu að tjá sig þegar leitað var viðbragða. Í yfir­lýsingu kallaði yfirmaður Burger King þó eftir því að McDonald's taki þátt í að skrifa söguna og að fyrir­tækin vekji með þessum hætti til umræðu um Friðar­daginn þann 21. september næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár