Langflestar Dublin-sendingar allra Norðurlanda miðað við samþykktar umsóknir

Tvöfalt fleiri hæl­is­um­sóknir eru end­ur­sendar á vegum Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar en sam­þykktar á Íslandi. Er þetta hlut­fall lang­hæst af öllum Norð­ur­lönd­unum.

Hlutfall umsókna um Dublin-end­ur­send­ingar á hverja sam­þykkta hæl­is­um­sókn var fjór­falt hærra á Íslandi en í öðrum Norð­ur­löndum á tíma­bil­inu 2008-2015. Ekki lítur út fyrir að hlut­fallið hafi lækkað, en í ár hefur Útlend­inga­stofnun sam­þykkt helm­ingi færri umsóknir en hún sendi til baka á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. 

Í tölum Útlend­inga­stofn­unar sem komu út 13. Júní kemur fram að 370 manns hafi sótt um hæli á Íslandi á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins. Á sama tíma hafa 52 hæl­is­um­sóknir verið sam­þykktar og 124 hæl­is­leit­endur sendir til baka á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar.

Þannig hefur Útlend­inga­stofnun sent rúm­lega tvö­falt fleiri hæl­is­leit­endur úr landi á vegum reglu­gerð­ar­innar en hún hefur sam­þykkt það sem af er ári. Það hlut­fall sam­svarar ágæt­lega hlut­falli Dublin-send­inga sem íslenska ríkið hefur sótt um miðað við sam­þykktar hæl­is­um­sóknir á árunum 2008-2015, sam­kvæmt Eurostat.

Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin hefur sætt mik­illi gagn­rýni í gegnum tíð­ina, en hún heim­ilar aðild­ar­ríkjum Schengen-sam­starfs­ins að senda hæl­is­leit­endur til baka til fyrsta Evr­ópu­lands­ins sem þeir komu til. Þar sem Ísland er í mjög fáum til­vikum fyrsti við­komu­staður hæl­is­leit­enda gefur reglu­gerðin Útlend­inga­stofnun aukna heim­ild til að senda hæl­is­leit­endur úr landi á grund­velli hennar.

Reglu­gerðin var stofnuð með það mark­mið að sam­hæfa flótt­manna­stefnu aðild­ar­ríkj­anna og jafna byrði hæl­is­leit­enda milli þeirra. Samkvæmt Eurostat var byrði hæl­is­leit­enda á Íslandi yfir tíma­bilið 2008-2015 hins vegar undir með­al­lagi Evr­ópu­ríkja, ef miðað er við íbúa­fjölda ríkj­anna.

Fyrr í ár sagði Sigríður Á. Andersen, inn­an­ríkis- og dóms­mála­ráð­herra, reglu­gerð­ina vera horn­stein Schengen-sam­starfs­ins og lýsti yfir efa­semdum á hvers konar breyt­ingum á henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár