Tímalína: Skotárásin á Bondi-ströndinni

Hátíðarhöld í tilefni ljósa­hátíðar gyðinga stóðu sem hæst þegar þung­vopnaðir feðgar stigu út úr bíl sínum og hófu skothríð á Bondi-ströndinni á sunnudag. Þá hófst ein mann­skæðasta skotárás í sögu Ástralíu. Fimmtán eru látnir og tugir til viðbótar særðir.

Herða reglur
Herða reglur Leið­togar Ástralíu hafa sam­þykkt að herða vopna­lög­gjöf­ina eftir að árás­ar­menn drápu 15 manns á hátíð gyð­inga á Bondi strönd­inni. Um er að ræða verstu fjölda­skotárás í ára­tugi sem yfir­völd hafa for­dæmt sem gyð­inga­hatur og hryðju­verk. Mynd: SAEED KHAN / AFP

Ástralía stendur frammi fyrir einni mann­skæðustu fjölda­skotárás í sögu landsins eftir að faðir og sonur hófu skothríð á mann­fjölda sem hafði safnast saman á hátíð gyðinga á Bondi-ströndinni.

Með því að nota vitnis­burði, myndefni frá almenningi og opinberar yfir­lýsingar hefur AFP sett saman tímalínu yfir árásina á sunnudag þar sem 15 manns létu lífið og tugir særðust. 

Stuðningsmaður Íslamska ríkisins

Naveed Akram, sem er 24 ára, vakti fyrst athygli áströlsku leyni­þjónustunnar árið 2019, þegar hann var táningur í Sydney og umgekkst stuðnings­menn Íslamska ríkisins.

Anthony Albanese forsætis­ráðherra sagði í dag að tveir samverka­menn Naveeds hefðu síðar verið fangelsaðir en hann hefði ekki verið talinn alvarleg ógn og að mestu horfið af ratsjá lögreglunnar.

Það var þar til hann tók þátt í skotárás með 50 ára gömlum föður sínum, Sajid Akram, sem beindist að hópi gyðinga sem hafði safnast saman til að fagna ljósa­hátíð.

…

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár