Segir dæmin sem þingmaður nefnir um spillingu „heldur léttvæg“

Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra voru ekki sam­mála á þingi í dag um hvaða mál kalla ætti spill­ing­ar­mál.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að þótt spill­ing eigi aldrei að við­gang­ast sé kannski ekki hægt að koma alveg í veg fyrir að fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar vikju af vegi dyggð­ar­innar í við­skiptum. „Þá kemur einmitt að hlut­verki stjórn­valda, að lög og skila­boð stjórn­valda séu skýr. Öllum sé ljóst að hart verði tekið á hvers kyns belli­brögðum og fjár­veit­ingar til nauð­syn­legra eft­ir­lits­stofn­ana, meðal ann­ars umboðs­manns Alþingis, skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sak­sókn­ara, séu ekki skornar við nögl.“

Þetta kom fram í máli þing­manns­ins í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun en hann innti eftir svörum Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, varð­andi það sem hann kall­aði spill­ing­ar­mál.

Logi hóf fyr­ir­spurn sína á því að minn­ast á hinn árlega lista Transparency International sem mælir spill­ingu en Ísland fellur um sex sæti milli ára. Landið er nú í 17. sæti og neðst Norð­ur­land­anna sem raða sér í efstu sætin.

„Í skýrsl­unni segir að spill­ing sé ill­víg mein­semd sem ógni lýð­ræð­inu. Það sýni rann­sóknir með óyggj­andi hætti. Spilling ógni grund­vall­ar­rétt­indum, tæki­færum og lífs­gæðum fólks og grafi undan trausti í sam­fé­lag­inu og gagn­vart stjórn­völdum, stofn­unum fram­kvæmd­ar­valds­ins, lög­gjaf­ar­valds­ins og dóms­valds­ins. Meðal skýr­inga nefnir skýrslan banka­hrunið, fjár­mála­vafstur stjórn­mála­manna í Panama-skjöl­unum og nú síð­ast Sam­herj­a­málið, einnig að spill­ing nái til opin­berra aðila. Lái mér eng­inn þó að hug­ur­inn reiki örstutt að Lands­rétt­ar­mál­inu,“ sagði Logi.

„Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra hefur áður svarað mér að hann hafi ekki áhyggjur af spill­ingu á Íslandi og í íslensku við­skipta­lífi, bæði í kjöl­far þess að Ísland lenti á gráum lista og þegar Sam­herj­a­skjölin birt­ust. Það eru út af fyrir sig mjög skýr skila­boð. Hann virð­ist líta á mál sem koma upp sem til­fallandi en ekki kerf­is­vanda sem stjórn­völd eigi að taka á. Transparency International lítur öðru­vísi á og hefur áhyggjur bæði af stöð­unni og þróun síð­ustu ára.“

Spurði Logi Bjarna hvort hann væri jafn áhyggju­laus nú og þegar hann spurði hann fyrir einu ári eða fynd­ist honum til­efni til að taka mið af ábend­ing­unum. Og ef svo væri, hvað hygð­ist rík­is­stjórnin gera.

Kjósa menn að líta á glasið hálftómt eða hálffullt?

Bjarni svar­aði og sagð­ist telja að dæmin sem Logi nefndi því til stuðn­ings að það þyrfti að hafa miklar áhyggjur af spill­ingu á Íslandi væru nú heldur létt­væg.

„Að kalla það mál spill­ingu í Lands­rétt­ar­mál­inu þegar öll gögn eru opin, þegar Alþingi kemur að mál­inu og tekur síð­ustu ákvörð­un­ina, þegar emb­ætt­is­menn mæta fyrir nefnda­svið og færa rök fyrir til­lögu ráð­herr­ans, þegar hér í þing­sal eru greidd atkvæði fyrir opnum tjöldum. Að kalla afgreiðslu slíkra mála spill­ingu er auð­vitað með miklum ólík­indum.

Hérna skiptir dálítið máli hvort menn kjósa að líta svo á að glasið sé hálf­tómt eða að það sé hálf­fullt. Þegar við skoðum þessa nið­ur­stöðu með aðeins jákvæð­ara hug­ar­fari en hátt­virtur þing­manni virð­ist vera tamt að gera, þá má sjá að Ísland skipar sér í flokk með þeim þjóðum í heim­inum þar sem spill­ing er minnst. En vilji menn hins vegar leggja ein­hverja aðra mælistiku á það mál og skoða í hvaða hópi við erum ekki er jú hægt að draga það fram að á þennan mæli­kvarða, sem er ekk­ert algildur mæli­kvarði eða full­kom­inn á nokkurn hátt, skorum við ekki jafn hátt og Norð­ur­löndin,“ sagði ráð­herr­ann.

Bjarni telur það sjálf­sagt að velta því upp hvað stjórn­völd geti gert til þess að bregð­ast við þeirri stöðu. „Eitt af því sem er áber­andi í skýrslu sem þess­ari, og það sama á við um GRECO-úttektir, er að það eru ekki endi­lega dæmin um spill­ing­ar­mál sem menn hafa í hönd­unum, heldur til­finn­ingin fyrir því að ein­hvers staðar grass­eri spill­ing, ein­hver svona óljós til­finn­ing. Oft ger­ist það nú þegar for­menn í stjórn­mála­flokkum koma upp og tala einmitt inn í þá til­finn­ingu, að hún versnar.“

Dæmin alls ekki léttvæg

Logi kom aftur í pontu og sagði að þegar kemur að aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu þá vildi hann hafa glasið fullt og að dæmin sem hann nefndi væru nefni­lega alls ekki létt­væg.

„Ég nefndi banka­hrun. Ég nefndi óeðli­legt fjár­mála­vafstur stjórn­mála­manna í tengslum við Panama-skjölin og ég nefndi Sam­herj­a­skjölin. Mig langar þá að nefna í sam­hengi við þessa skýrslu að nýlega birt­ist skoð­ana­könnun MMR sem sýnir að ein­ungis 23 pró­sent treysta fjár­mála­ráð­herr­anum til að halda utan um sölu á Íslands­banka. Þetta er for­vitni­leg nið­ur­staða og það vakna óneit­an­lega spurn­ingar,“ sagði hann og spurði í fram­hald­inu hvort Bjarni teldi að hér væru lands­menn að lýsa tor­tryggni í garð fjár­mála­ráð­herra Íslands yfir­leitt, og þá stjórn­valda, að um væri að ræða kerf­is­vanda, eða teldi hann, eins og í hinum mál­unum, að um væri að ræða afmark­aðan vanda og tor­tryggni í garð fjár­mála­ráð­herr­ans og tengsl hans við eitt af þessum málum í skýrsl­unni.

Bara „einhver þvæluumræða“

Fjár­mála­ráð­herra svar­aði í annað sinn og sagði að komið væri „dálítið langt frá kjarna máls þegar við erum farin að skipt­ast á skoð­unum um nið­ur­stöður skoð­ana­kann­ana. Eða ættum við kannski að velta því fyrir okkur hér, myndi það skila okkur eitt­hvað fram veg­inn í þágu þjóð­ar­innar, hvers vegna það skyldi vera að 83 til 84 pró­sent þjóð­ar­innar vilji ekki Sam­fylk­ing­una sem val­kost við stjórn lands­ins. 83 pró­sent segja bara nei þegar Sam­fylk­ingin býður fram, við kjósum eitt­hvað annað. Þetta er bara ein­hver þvælu­um­ræða.

Aðal­at­riðið er að við stöndum við það sem sagt hefur verið í banka­sölu­mál­inu, að fylgja opnu og gagn­sæju ferli þar sem eng­inn er að flýta sér. Við stígum var­færin skref og fylgjum því sem boðað hefur verið, að allir geti tekið þátt sem hafa áhuga,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár