Ísland fellur á spillingarlista og er í 17. sæti – Enn og aftur spilltast allra Norðurlanda

Ísland er spilltasta ríki Norð­ur­land­anna sam­kvæmt nýrri úttekt Transparency International. Ákveðið bakslag hefur átt sér stað í bar­átt­unni gegn spill­ingu hér á landi en Ísland hefur hrapað niður úr 1. sæti árið 2006 í 17. sæti árið 2020.

Á meðal þeirra mála þar sem grunur er um spillingu sem ásakanir eru um að teygi sig inn í stjórnsýslu landsins, er Samherjamálið svokallaða. Fjöldi manns mótmælti vegna þess í nóvember 2019.
Á meðal þeirra mála þar sem grunur er um spill­ingu sem ásak­anir eru um að teygi sig inn í stjórn­sýslu lands­ins, er Sam­herj­a­málið svo­kall­aða. Fjöldi manns mót­mælti vegna þess í nóv­em­ber 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Ísland fellur um sex sæti og er í því sautj­ánda á lista Transparency International, alþjóð­legra sam­taka gegn spill­ingu, um spill­ingu í helstu löndum heims fyrir árið 2020. Listinn virkar þannig að hvert land fær stig fyrir ákveðna þætti tengdum spill­ingu í opin­bera geir­anum og það land sem fær flest stig er talið minnst spillt sam­kvæmt spill­inga­vísi­tölu Transparency International. Stiga­kvarð­inn er frá 0 (mest spillt) upp í 100 (minnst spillt).

Spill­ing­­ar­­vísi­tala Tran­­sparency International er byggð á á­liti sér­­fræð­inga sem og almennri skynjun á spill­ingu í opin­berum stofn­unum og ­stjórn­­­sýslu. Stofn­unin sækir upp­lý­ingar sínar til mis­mun­andi grein­ing­ar­fyr­ir­tækja og hvað Ísland varðar eru not­aðar sjö gagna­upp­sprett­ur á und­an­förnum árum. Um er að ræða hug­lægt mat þeirra á spill­ingu. Þau lönd sem fá hæsta ein­kunn eiga það sam­eig­in­­legt að þar er ­stjórn­­­sýsla opin og almenn­ingur getur dregið stjórn­­endur til ábyrgð­­ar. Lægst­u ­ein­kunnir fá lönd þar sem mútur eru algeng­­ar, refsi­­leysi ríkir gagn­vart ­spill­ingu og opin­berar stofn­­anir sinna ekki hlut­verki sínu í þágu borg­­ar­anna.

Hin Norðurlöndin minnst spillt

Danmörk og Nýja Sjáland eru þau land sem er minnst spillt, með 88 stig af 100 mögu­legum. Finnland, Svíþjóð, Singa­pore og Sviss koma þar á eftir með 85 stig saman í þriðja sæti og Norðmenn fylgja fast á eftir með 84 stig.

Staða Íslands á list­anum hefur hins vegar versnað hratt á und­an­förnum árum og hefur aldrei verið verri en nú þegar landið er með 75 stig í 17. sæti af 180 löndum sem hann nær til. Ísland er því, enn eitt árið, það Norð­ur­landa sem þykir spillt­ast sam­kvæmt spill­ing­ar­vísi­tölu Transparency International. Á árunum 2005 og 2006 var Ísland í 1. sæti list­ans. Á árinu 2008 féll Ísland niður í 7. sæt­ið. En síð­ast­lið­inn rúma ára­tug ár hefur leiðin legið niður á við. Árið 2018 féll Ísland niður í 14. sæti og sat í því ell­efta árið 2019.

Spilltasta land í heimi sam­kvæmt list­anum eru Suður Súdan og Sómalía. Þau fá tólf stig á spill­ing­ar­kvarð­anum. Þar á eftir koma Sýrland, Jemen og Venes­ú­ela.

Mikið áhyggjuefni

Í til­kynn­ingu frá Íslands­deild Transperancy International, segir að þessar mæl­ingar njóti mik­illar við­ur­kenn­ingar á alþjóða­vett­vangi. „Fall Íslands niður spill­ing­ar­vísi­tölu­list­ann er mikið áhyggju­efni og stjórn­völd sem og almenn­ingur ættu að huga alvar­lega að því hvað gæti valdið þess­ari þróun og hvernig er hægt að bæta úr stöð­unni.“

[adspot]Samtökin Transparency International voru stofnuð árið 1992 og hafa um langa hríð beitt sér til að vinna að heil­indum í stjórn­málum, stjórn­sýslu og við­skipta­lífi í heim­inum. Þau eru sjálf­stæð og óháð stjórn­völdum og ekki rekin til að skila hagn­aði. Þau starfa í meira en 100 löndum.

Í til­kynn­ingu þeirra sem send var út í morgun vegna birt­ingu list­ans segir að alþjóða­stofn­anir hafi lýst því yfir og rann­sóknir sýni með óyggj­andi hætti að spill­ing er ill­víg mein­semd sem ógni lýð­ræð­inu, grund­vall­ar­rétt­indum, tæki­færum og lífs­gæðum fólks hvar­vetna í heim­inum og grafi undan trausti í sam­fé­lag­inu og gagn­vart stjórn­völdum og stofn­unum á sviði fram­kvæmd­ar­valds, lög­gjaf­ar­valds og dóms­valds. „Ísland engin und­an­tekn­ing frá því.“

Íslands þarf að gera meira

Í fyrra­haust kom út ný eft­ir­fylgn­is­skýrsla GRECO, sam­taka ríkja innan Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu, um Ísland. Nið­ur­staðan hennar var að Ísland þurfi að gera meira til þess að koma í veg fyrir spill­ingu og efla heil­indi hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmda­valds og innan lög­gæslu­stofn­ana.

[links]Í skýrsl­unni var lagt mat á það hvernig íslensk stjórn­völd hefðu til þessa brugð­ist við þeim 18 til­lögum að úrbótum sem GRECO setti fram í skýrslu sinni um Ísland árið 2018. Búið var að koma til móts við fjórar þeirra með full­nægj­andi hætti, að mati sam­tak­anna. Sjö til­lögur til við­bótar voru sagðar hafa verið inn­leiddar að hluta, en ekki var búið að inn­leiða breyt­ingar til þess að mæta sjö til­lögum sem lúta flestar að lög­gæslu­málum.

Í frétta­til­kynn­ingu frá GRECO, sem send var út um miðjan nóv­em­ber 2020 vegna útkomu skýrsl­unnar, sagði að þrátt fyrir að sam­tökin kynnu að meta heild­ræna nálgun sem íslensk stjórn­völd hefðu tekið gagn­vart því að byggja upp varnir gegn hags­muna­á­rekstrum á æðstu stöðum í stjórn­sýsl­unni, vanti enn upp á nokkra hluti.

Sér­stak­lega nefndi GRECO að það skorti upp á leið­bein­ingar til emb­ætt­is­manna um hvernig þeir skuli haga sam­skiptum sínum við þriðju aðila og hags­muna­verði. Þá sagði einnig GRECO að þær reglur sem tóku gildi um síð­ustu ára­mót og komi í veg fyrir að æðstu hand­hafar fram­kvæmda­valds (sem skil­greindir eru sem ráð­herrar og aðstoð­ar­menn þeirra, ráðu­neyt­is­stjórar, skrif­stofu­stjórar og sendi­herrar) geti fært sig yfir í hags­muna­gæslu innan við sex mán­uðum frá starfs­lokum hjá hinu opin­bera, virt­ust „fremur veikar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár