Er Sjálfstæðisflokkur vandamál eða svar, hvað eigum við skilið og fæst traust með fötum?

Þingmenn ræddu traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu í sér­stakri umræðu á Alþingi í dag. Þeir sem tóku til máls voru flestir hvorki sam­mála um orsök traust­leysis né leiðir til að laga það.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, stofnaði til umræðu við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um traust á Alþingi í dag.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, stofn­aði til umræðu við Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra um traust á Alþingi í dag. Mynd: Samsett

Aug­ljós­asta skrefið sem þarf að stíga til að auka traust á íslensk stjórn­mál er að halda Sjálf­stæð­is­flokknum frá völdum en samt er hluti af lýð­ræð­inu okkar að kjós­endur hafa kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn til að fara með völd.

Lands­menn eiga skili stjórn­völd sem hafa bein í nef­inu gagn­vart and­lýð­ræð­is­legum öflum og standa vörð um hags­muni almenn­ings gagn­vart þeim en á sama tíma hafa verið inn­leiddar hér umfangs­miklar kerf­is­breyt­ingar til að auka gagn­sæi og vinna gegn spill­ingu.

Þarf að rekja spor þeirra risa sem byggja auð­legð sína á nýt­ingu á þjóð­ar­eign Íslend­inga, treystir for­sæt­is­ráð­herra ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála til að sitja áfram í rík­is­stjórn sinni eða snýst þetta traust­leysi á end­anum bara um það hvernig þing­menn klæða sig? Svo er það Samherji, meint sið­laus verk starfs­manna og stjórn­enda fyr­ir­tæk­is­ins og til­raunir þeirra til að grafa undan lyk­il­stofn­unum í sam­fé­lag­inu.

Þetta er meðal þess sem kom fram í sér­stakri umræðu um traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu sem fram fór á Alþingi í dag.

Siðlaus verk og kerfisbreytingar

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, var máls­hefj­andi hinnar sér­stöku umræðu og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var til and­svara. Björn Leví spurði í ræðu sinni hvort það væri ásætt­an­legt að einn af hverjum þremur bæri traust til stjórn­mála, og sagð­ist sjálfur ekki telja svo vera. Hann vildi sjálfur vilja sjá að tveir af hverjum þremur myndu vera þeirrar skoð­unar að verið væri að vinna almanna­hags­munum á vett­vangi þings­ins en ekki verja sér­hags­muni. Björn Leví spurði for­sæt­is­ráð­herra hverjar væru helstu áskor­anir sem mæta þyrfti á næst­unni til að mæta traust­leys­inu. „Þessa dag­anna erum við að verða vitni að því hvernig er reynt að myrða mann­orð með arði af sam­eig­in­legum auð­lindum í sið­lausri vörn vegna sið­lausra verka.“

[adspot]Þar vís­aði Björn Leví til opin­ber­ana Kjarnans og Stund­ar­innar um hina svoköll­uðu „skæru­liða­deild“ Samherja sem beitti sér gegn blaða­mönnum, lista­mönnum og öðru nafn­greindu fólki sem gagn­rýnt hafði fyr­ir­tækið og reyndi meðal ann­ars að hafa áhrif á nið­ur­stöðu for­manns­kjör í stéttar- og fag­fé­lagi blaða­manna. „Vandinn er kerf­is­lægur og birt­ist okkur reglu­lega í ein­stökum sið­ferð­is­legum álita­efnum eins og Sam­herj­a­mál­inu, Lands­rétt­ar­mál­inu, upp­reist æru, Í Ásmund­ar­sal, í ráðn­ingu á ráðu­neyt­is­stjóra, á Klaust­ur­bar, í Glitn­is­skjöl­unum, Panama­skjöl­unum og í fullt af öðrum ein­stökum málum[...]aug­ljósa fyrsta skrefið sé að halda Sjálf­stæð­is­flokknum frá valda­stólum því að þaðan koma nær öll þessi ein­stöku sið­ferð­is­legu álita­mál“.

Katrín svar­aði því til að hún hefði beitt sér mikið fyrir kerf­is­breyt­ingum. Hún hefði sett saman hóp til að kanna þessar áskor­anir sem skil­aði af sér átta áherslu­sviðum og 25 ein­stökum til­lögum til úrbóta. HEilt á litið hafi gengið vel að inn­leiða þessar til­lögur og mark­miðum stjórn­valda hafi verið náð í á að minnsta kosti fjórum af átta áherslu­sviðum sem voru til­greind í til­lögum starfs­hóps­ins. Þar hafi munað mestu um þrjú frum­vörp til laga sem voru sam­þykkt á kjör­tíma­bil­inu: frum­varp til laga um breyt­inga á upp­lýs­inga­lögum, frum­varp um varnir gegn hags­muna­vörslu og frum­varp um vernd upp­ljóstr­ara. Katrín sagði að allt væru þetta kerf­is­breyt­ingar og allt aðgerðir til þess fallnar að auka traust á Alþingi.

Eru kjósendur Sjálfstæðisflokks bara spilltir?

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks sagði í ræðu sinni að Píratar færu með þá mön­tru að lausnin á því að traust bygg­ist upp til stjórn­mála væri að halda Sjálf­stæð­is­flokknum frá völdum. Hún sagð­ist velta fyrir sér hvaða skila­boð væri að senda til þjóð­ar­innar með þessum mál­flutn­ingi, enda væri Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sá flokkur sem fengi flest atkvæði í þing­kosn­ingum og í flestum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. „Það fólk sem kýs þennan flokk, er það þá bara spillt?,“ spurði Bryndís.

Hún sagði að með þess­ari mön­tru, sem gengi út á að hér væri allt í fínu lagi ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri ekki við völd, finn­ist henni væri verið að tala inn í þjóð­ina að hér væri raun­veru­leg og erfið spill­ing.

Spilling í stjórn­málum er alvar­legt vanda­mál mjög víða, sagði Bryndís og sagði frá því að hún hefði sinnt kosn­inga­eft­ir­liti í Hvíta Rúss­landi í síð­ustu kosn­ingum þar í landi. Þar hafi hún orðið vitni að kosn­inga­svindli þar sem vilji þjóð­ar­innar var að engu gerður. Nýjustu fregnir þaðan, þar sem flug­vél Ryanair var kyrr­sett í Hvíta Rúss­landi til að hægt yrði að taka fastan blaða­mann, sýndu hvernig staða mála væri þar í landi. „Með þessu er ég ekki að segja að hér á landi sé allt í hinu fín­asta lagi og að hér á landi þurfum við ekki að hafa áhyggjur af neinu. En við erum ekki á sama stað og þessar þjóðir. Og þegar íslenskir þing­menn fara á erlenda grundu og tala með þeim hætti að hér séu mikil spill­ing­ar­vanda­mál það er til þess fólgið að ýta enn frekar undir þá ímynd, sem er ekki til staðar. Þrátt fyrir allt þá búum við hér í góðu sam­fé­lagi sem virðir lýð­ræðið. Og hluti af því lýð­ræði er að kjós­endur hafa kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn til að fara með völd.“

Landsmenn eigi skilið stjórnvöld með bein í nefinu

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði í ræðu sinni hvað traust væri. „Það er sú til­finn­ing að ástæða til að ætla að ein­hver mann­eskja eða stjórn­mála­flokkur standi við orð sín. Láti ekki stjórn­ast af ann­ar­legum hvötum. Starfi í góðri trú. Þegar litið er á þá íslensku stjórn­mála­hefð að ganga óbund­inn frá kosn­ingum eftir að hafa skuld­bundið sig á ýmsan hátt fyrir kosn­ingar, en rísa svo upp eftir kosn­inga­nótt­ina eins og ein­herji í Valhöll með öllu ósnort­inn af skuld­bind­ingum sínum um rík­is­stjórn­ar­sam­starf, þá verður ekki sagt að kjós­endur hafi ríka ástæðu til að treysta íslenskum stjórn­mála­mönnum eða íslensku stjórn­mála­kerfi sér­stak­lega.“

[adspot]Hann ræddi svo um nýlegar opin­ber­anir Kjarnans og Stund­ar­innar á „skæru­liða­deild“ Samherja og sagði að í henni hafi almenn­ingur fengið verð­mæta inn­sýn í valda­kerfi lands­ins. „VIð höfum séð menn sem hafa kom­ist til óheyri­legs auðs og valda með aðgangi að auð­lindum þjóð­ar­innar. Við höfum séð við­horf þess­ara manna til eft­ir­lits­stofn­ana sem starfa í almanna­þágu. Seðla­bank­ans og frjálsra fjöl­miðla og við höfum séð hvernig þeir ráð­ast að ein­stak­lingum og grafa undan stofn­unum. Lands­menn eiga skili stjórn­völd sem hafa bein í nef­inu gagn­vart slíkum öflum og standa vörð um hags­muni almenn­ings gagn­vart þeim. Því miður bendir fátt til þess að á það sé að treysta.“

Öflugt lýðræði eitt sterkasta vopnið gegn spillingu

Hann Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, sagði stöðu fjöl­miðla vera spegil á stöðu lýð­ræðis í hverju sam­fé­lagi og öfl­ugt lýð­ræði væri eitt sterkasta vopnið gegn spill­ingu í hverju sam­fé­lagi. „Hver er þá staða fjöl­miðla á Íslandi? Það bár­ust fréttir af því nýlega enn eitt árið að við föllum niður lista sam­tak­anna Blaða­menn án landamæra yfir fjöl­miðla­frelsi í heim­inum og erum orðin miklir eft­ir­bátar ann­arra Norð­ur­landa, sam­fé­laga sem við berum okkur gjarnan saman við og það með réttu. Í umsögn­inni er sér­stak­lega til­tekið að sam­skipti fjöl­miðla og stjórn­mála­fólks hafi farið versn­andi hin síð­ustu ár og er líka minnst á Sam­herj­a­skjölin og við­brögð Samherja við þeirri umfjöllun fjöl­miðla á Íslandi. Á þessum tíma, sem full ástæða er til að hafa áhyggjur af varð­andi stöðu fjöl­miðla á Íslandi, ber­ast fréttir af ítrek­uðum og grófum árásum skæru­liða­deildar útgerð­ar­ris­ans Samherja á fjöl­miðla­menn og aðra gagn­rýnendur, árásum á fólk sem ber ábyrgð á því að tryggja gegn­sæi og upp­lýs­inga­flæði í umræð­unni fyrir íslenskt sam­fé­lag.“

Hún minnt­ist á aðgerð­ar­lista stjórn­valda sem settur var fram eftir að Namib­íu­mál Samherja, sem snýst um meintar mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti, kom upp í nóv­em­ber 2019, og átti að leiða til auk­ins trausts á íslensku atvinnu­lífi. „Hvað er að frétta af þeim aðgerða­lista? Við bíðum nefni­lega enn, m.a. eftir úttekt á við­skipta­háttum íslenskra útgerða sem stunda veiðar og eiga í við­skiptum um afla­heim­ildir í þró­un­ar­löndum. Það skiptir máli að fá svör. Það skiptir máli að við fáum vopn í hern­aði við skæru­liða útgerðarisanna. Við í Viðreisn höfum lagt til breyt­ingar til að leggja hönd á plóg í þess­ari bar­áttu. Við höfum lagt til að stærstu útgerð­irnar verði skráðar á verð­bréfa­markað svo fjár­málin verði opin­ber, eign­ar­að­ildin verði dreifð­ari og að afmarkað verði með skýr­ari hætti hámark eignar tengdra aðila í afla­hlut­deild. Við höfum líka beðið núna í ríf­lega fimm mán­uði eftir því að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra skili Alþingi umbeð­inni skýrslu um eign­ar­að­ild þess­ara útgerðarisa í íslensku atvinnu­lífi óháð sjáv­ar­út­vegi. Hvar liggja spor þess­ara risa, sem byggja auð­legð sína á þjóð­ar­auð­lind Íslend­inga? Hvar liggja spor þeirra í íslensku sam­fé­lagi, í atvinnu­lífi okkar?“

Brynjar segir klæðnað skipta máli

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, sagði aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í kjöl­far Namib­íu­máls­ins, sem kom upp haustið 2019, vera svaka­legt. Af þeim sjö aðgerðum sem rík­is­stjórnin ætl­aði að grípa til vegna þess varð ein að veru­leika.

[links]Ekkert hafi orðið af þeim aðgerðum sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, átti að grípa til og fylgja eftir. „Ráð­herr­ann ætlar greini­lega ekki að aðhaf­ast neitt, enda hvað ætti ráð­herr­ann að aðhaf­ast ver­andi bull­andi van­hæfur til allra aðgerða tengdu þessu félagi. Ég spyr því hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra sem seg­ist vilja efla traust á stjórn­mál­unum, á Alþingi og stjórn­sýsl­unni: Treystir hún ennþá hæst­virtum sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra til að fara með þetta emb­ætti? Er það rétt­læt­an­legt að hann sitji í þessu emb­ætti á meðan að þetta mál tröll­ríður sam­fé­lag­inu?“

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, steig í pontu og sagði að ef traust á stjórn­mál og Alþingi væri lítið þá væru þing­menn aug­ljós­lega sjálfir söku­dólg­ur­inn. Ástæða þess sé sú að þing­menn séu alltaf í upp­hróp­unum í stað gagn­legrar og mál­efna­legrar umræðu. „Við tölum allt niður í stað þess að hafa uppi ein­hverja póli­tíska hug­mynda­fræði[...]Það skiptir máli hvernig við komum fram, hvernig við erum klædd þegar við komum fram. Mál­efna­leg gagn­rýni má vera hvöss, en við ráðum ekki við það, það skulu alltaf vera upp­hróp­anir um ein­hverja aðra en okkur sjálf til að grafa undan stjórn­mál­unum. Við erum snill­ingar í því og höfum verið snill­ingar í því nokkuð lengi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár