Mynd: Bára Huld Beck

Enn lækkar einkunn Íslands á listanum yfir minnst spilltu löndin – Skæruliðadeild Samherja tiltekin sem ástæða

Ísland er enn og aftur það Norð­ur­land­anna sem situr neðst á lista Transparency International yfir spillt­ustu lönd heims. Einkunn Íslands hefur aldrei verið lægri en nú frá því að sam­tökin hófu að mæla spill­ingu hér­lendis árið 1998.

Einkunn Íslands í spill­inga­vísi­tölu Transparency International, alþjóð­legra sam­taka gegn spill­ingu, lækk­aði enn á ný á milli ára og er nú 74 af 100. Einkunn Íslands lækkar um eitt stig milli ára.

Þetta kemur fram í nýrri spill­inga­vísi­tölu, fyrir árið 2021, sem birt var í morgun.

Þegar litið er enn lengra aftur í tíma, til áranna 2005 og 2006, er fallið enn meira en þá tróndi Ísland á toppi list­ans sem minnst spillta land heims með 95 til 97 stig. Ýmsar opin­ber­anir í kjöl­far banka­hruns­ins, sem ekki voru flestum ljósar, orsök­uðu skarpa lækkun næstu ár og árið 2012 var ein­kunn Íslands komin niður í 82 stig. Síðan þá hefur ein­kunn Íslands lækkað á milli ára með einni und­an­tekn­ingu, þegar hún hækk­aði lít­il­lega árið 2019. Frá því Transparency fór að mæla Ísland hefur ein­kunn lands­ins aldrei verið lægri en nú.

Ísland situr í 13-17 sæti list­ans ásamt Írlandi Eist­landi, Aust­ur­ríki og Kanada en sat í 17-18 sæti með Eist­landi í fyrra.

List­inn virkar þannig að hvert land fær stig fyrir ákveðna þætti tengdum spill­ingu í opin­bera geir­anum og það land sem fær flest stig er talið minnst spillt sam­kvæmt spill­inga­vísi­tölu Transparency International. Stiga­kvarð­inn er frá 0 (mest spillt) upp í 100 (minnst spillt).

Hin Norðurlöndin í efstu sætunum yfir minnst spilltu löndin

Samtökin Transparency International voru stofnuð árið 1992 og hafa um langa hríð beitt sér til að vinna að heil­indum í stjórn­mál­um, stjórn­sýslu og við­skipta­lífi í heim­in­um. Þau eru sjálf­stæð og óháð stjórn­völdum og ekki rekin til að skila hagn­aði. Þau starfa í meira en 100 lönd­um.

Spill­ing­­­ar­­­vísi­tala Transparency International er byggð á á­liti sér­­­fræð­inga sem og almennri skynjun á spill­ingu í opin­berum stofn­unum og ­stjórn­­­­­sýslu. Í ár eru spill­ing mæld í alls 180 löndum.

Stofn­unin sækir upp­lýs­ingar sínar til mis­­mun­andi grein­ing­­ar­­fyr­ir­tækja og hvað Ísland varðar hafa verið not­aðar sjö gagna­­upp­­­sprett­ur á und­an­förnum árum. Um er að ræða hug­lægt mat þeirra á spill­ingu. Þau lönd sem fá hæsta ein­kunn eiga það sam­eig­in­­­legt að þar er ­stjórn­­­­­sýsla opin og almenn­ingur getur dregið stjórn­­­endur til ábyrgð­­­ar. Lægst­u ­ein­kunnir fá lönd þar sem mútur eru algeng­­­ar, refsi­­­leysi ríkir gagn­vart ­spill­ingu og opin­berar stofn­­­anir sinna ekki hlut­verki sínu í þágu borg­­­ar­anna.

Dan­mörk, Finnland og Nýja Sjá­land eru þau land sem er minnst spillt, með 88 stig af 100 mögu­leg­um. Sví­þjóð, Singa­pore og Noregur koma þar á eftir með 85 stig. Ísland er því enn eitt árið það Norð­ur­land­anna sem mælist með mesta spill­ingu.

Spilltasta land í heimi sam­kvæmt list­anum eru Suður Súdan með ell­efu stig. á spill­ing­ar­kvarð­an­um. Þar á eftir koma Sýr­land, Sómalía, Venes­ú­ela og Jemen.

Kosningaklúðrið í Norðvesturkjördæmi náði ekki að vigta inn

Í umfjöllun Transparency International er sér­stak­lega til­greint að alþjóð­lega sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji hefði beitt bola­brögðum (e. dirty tactics) til að ógna blaða­mönnum og almennum borg­urum sem höfðu fjallað um við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu og Angóla. Þau vand­kvæði sem komu upp vegna taln­ingu atkvæða í Norð­vest­ur­kjör­dæmi í þing­kosn­ing­un­unum sem fram fóru í sept­em­ber í fyrra vigta ekki inn í ein­kunn Íslands fyrir árið 2021 vegna þess hver seint nið­ur­staða Alþingis, sem var sú að láta síð­ari taln­ingu atkvæða standa þrátt fyrir að rétt­mæt óvissa væri um áreið­an­leika hennar, kom fram.

Sam­herj­­­a­­­málið komst í hámæli eftir að þáttur Kveiks sem opin­ber­aði starf­­semi Sam­herja í Namibíu fór í loftið í nóv­­­em­ber 2019 en umfjöll­unin var unnin í sam­­­starfi Kveiks, Stund­­­ar­inn­­­ar, Al Jazeera og Wikileaks.

Í mál­inu er grunur er að um mút­u­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­­ars til erlendra opin­berra starfs­­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auð­g­un­­ar­brot.

Málið hefur verið til rann­­sóknar hjá emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara og skatta­yf­ir­völdum hér­­­lend­­is. Það er einnig til rann­­sóknar í Namibíu þar sem fjöl­margir ein­stak­l­ingar hafa verið ákærð­­ir. Í Fær­eyjum hefur Sam­herji þegar greitt mörg hund­ruð milljón króna í van­gold­inna skatta og meint skatta­snið­­ganga fyr­ir­tæk­is­ins þar hefur verið til­­kynnt til lög­­­reglu.

„Skæruliðadeild Samherja“ opinberuð

Sam­herji brást strax við af hörku eftir að þátt­ur­inn var sýnd­ur. Það lét meðal ann­ars fram­leiða áróð­urs­þætti þar sem bornar voru fram marg­hátt­aðar ásak­­anir á hendur þeim blaða­mönnum Kveiks sem unnu þátt­inn, og RÚV sem sýndi hann. Og einn starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins ofsótti Helga Selj­an, einn blaða­mann­anna sem stýrði umfjöll­un­inni, með því að elta hann og senda honum ógn­andi skila­­boð í gegnum SMS og sam­­fé­lags­miðla.

Kjarn­inn og Stundin birtu í maí 2021 röð frétta­skýr­inga um aðferðir sem Sam­herji beitti í áróð­urs­stríði vegna þessa máls.

Í umfjöll­un­inni kom fram að Sam­herji gerði út hóp fólks sem kall­aði sig „skæru­liða­deild Sam­herja“. Hlut­verk þeirra var meðal ann­ars að njósna um blaða­menn, greina tengsl þeirra, safna af þeim mynd­um, og skipu­­leggja árásir á þá. Þá var einnig opin­berað að starfs­­menn og ráð­gjafar Sam­herja reyndu að hafa áhrif á for­­manns­­kjör í stétta- og fag­­fé­lagi blaða­­manna á Íslandi, að starfs­menn Sam­herja hefðu sett sig í sam­band við fær­eyskan rit­­stjóra til að rægja fær­eyska blaða­­menn kerf­is­bund­ið, lagt á ráðin um að draga úr trú­verð­ug­­leika rit­höf­undar sem gagn­rýndi fyr­ir­tæk­ið, með því að fletta upp eignum hans.

Kjarn­inn greindi frá því að skýr vilji hefði verið til staðar innan Sam­herja til að skipta sér að því hverjir myndu leiða lista Sjálf­­stæð­is­­flokks í heima­­kjör­­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins og að starfs­­menn Sam­herja hefðu verið með áætl­­­anir um víð­tæka gagna­­söfnun um stjórn félaga­­sam­­taka sem berj­­ast gegn spill­ingu. Kjarn­inn greindi líka frá því hvernig Sam­herji hugð­ist bregð­­ast við gagn­rýni frá sitj­andi seðla­­banka­­stjóra á stríðs­­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins gegn nafn­­greindu fólki.

Viðurkenndu mistök og báðust afsökunar

Við­brögðin við umfjöll­un­inni voru mik­il og athæfi Samherja var for­dæmt víða, bæði inn­an­lands sem erlendis. Hægt er að lesa umfjöllun Kjarnans um þau við­brögð hér.

Transparency International á alþjóða­vísu lýstu meðal ann­ars yfir miklum áhyggjum af því sem fram hefur komið í umfjöll­unum Kjarn­ans og Stund­­ar­inn­ar. „Fyr­ir­tæki sem vilja sanna heil­indi sín nota ekki und­ir­­förular aðferðir gagn­vart þeim sem segja frá stað­­reyndum í þágu almanna­hags­muna,“ sagði í yfir­lýs­ingu þeirra.

Afsökunarbeiðni Samherja birtist í prentuðum dagblöðum 22. júní 2021. Mynd: Skjáskot
Afsök­un­ar­beiðni Samherja birt­ist í prent­uðum dag­blöðum 22. júní 2021. Mynd: Skjáskot

Sam­herji sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins 30. maí 2021. Þar sagði að ljóst væri að stjórn­­endur félags­­ins hafi gengið „of lang­t“ í við­brögðum við „nei­­kvæðri umfjöllun um félag­ið [...] Af þeim sökum vill Sam­herji biðj­­ast afsök­unar á þeirri fram­­göng­u.“

Nokkrum vikum síð­ar, 22. júní sama ár, voru birtar heil­­síð­u­aug­lýs­ingar frá Sam­herja með fyr­ir­­sögn­inni „Við gerðum mis­­tök og biðj­umst afsök­un­­ar“. Um var að ræða bréf sem fjallar um starf­­semi útgerð­­ar­innar í Namibíu og Þor­­steinn Már Bald­vins­­son, for­­stjóri Sam­herja og einn þeirra sem er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Sam­herj­a­mál­inu, skrif­aði undir bréf­ið.

Þar sagði einnig að „ámæl­is­verðir við­skipta­hætt­ir“ hefði fengið að við­gang­ast í starf­semi útgerðar Sam­herja í Namib­íu. Veik­leikar hefði ver­ið í stjórn­skipu­lagi og lausa­tök sem ekki áttu að líð­ast. „Við brugð­umst ekki við eins og okkur bar. Þetta hefur valdið upp­námi hjá starfs­fólki okk­ar, fjöl­skyld­um, vin­um, sam­starfs­að­il­um, við­skipta­vinum og víða í sam­fé­lag­inu. Við hörmum þetta og biðj­umst ein­læg­lega afsök­un­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spilling

Mest lesið undanfarið ár