Rússnesk stjórnvöld bönnuðu Wikipedia - Opnað fljótlega aftur

Rússnesk stjórn­völd voru ósátt við skrif sem birtust á Wikipedia síðunni vinsælu, og var hún þá bönnuð. Financial Times greindi frá þessu í dag, en það var sérstök stofnun rússneskra yfirvalda, sem ber nafnið Roskomnadzor, sem hefur eftirlit með því sem fram fer á internetinu, sem tók ákvörðun um að banna síðuna. Ástæðan sem var gefin upp, voru skrif um fíkniefni og framleiðslu­leið­beiningar fyrir almenning.


Russia’s ban on Wikipedia ends as abruptly as it started http://t.co/2au9NVVwKC


— Fortune (@FortuneMagazine) August 25, 2015

Bannið entist hins vegar ekki nema í skamman tíma eða innan við sólar­hring. Þá var opnað aftur fyrir aðgang að henni án nokkurra skýringa. Samkvæmt skrifum Fortune var bannið víðtækt í upphafi og ómögulegt fyrir notendur í Rússlandi að komast á síðuna, en síðan hafi verið opnað alveg fyrir aðgang að henni á nýjan leik.

Fyrstu fréttir af málinu bentu til þess að rússnesk stjórn­völd væru að útvíkka aðferðir sínar til þess að ritskoða það sem fram fer á internetinu, en svo virðist ekki hafa verið. Í það minnsta ekki nema í tæpan sólar­hring.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár