Þeir sem leigja af óhagnaðardrifnum leigufélögum mun ánægðari en aðrir

Upp­bygg­ing almennra íbúða í gegnum óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög hefur aukið veru­lega fram­boð á hús­næði fyrir fólk með lágar tekjur. Leigj­endur í kerf­inu eru mun ánægð­ari en aðrir leigj­endur og telja sig búa við meira hús­næð­is­ör­yggi.

Á meðal íbúða sem Bjarg leigufélag, sem er óhagnaðardrifið, hefur byggt og leigir nú út eru íbúðir við Hallgerðargötu í Laugarneshverfi.
Á meðal íbúða sem Bjarg leigu­fé­lag, sem er óhagn­að­ar­drifið, hefur byggt og leigir nú út eru íbúðir við Hall­gerð­ar­götu í Laug­ar­nes­hverfi. Mynd: Axel Jón Ellenarson/Sameyki

Alls eru 84 pró­sent þeirra sem leigja íbúð af óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum ánægðir með hús­næðið sem þeir leigja. Þeir eru ánægð­astir allra á leigu­mark­aði.

Ánægjan hjá þeim sem leigja hjá einka­reknu leigu­fé­lög­unum á Íslandi er hins vegar mun minni, en á meðal leigj­enda þeirra segj­ast 64 pró­sent vera ánægð með núver­andi hús­næði. Ánægjan er sömu­leiðis minni hjá þeim sem leigja af sveit­ar­fé­lögum, þar sem 66 pró­sent segj­ast ánægðir.

Mesta hús­næð­is­ör­yggið mælist hjá þeim sem leigja af óhagn­að­ar­drifnu leigu­fé­lagi, aðeins hærra en hjá þeim sem leigja hjá ætt­ingjum og vinum. Minnst mælist hús­næð­is­ör­yggið hjá þeim sem leigja af ein­stak­lingi á almennum mark­aði en næstir í röð­inni eru þeir sem leigja af einka­reknu leigu­fé­lagi.

Þetta kemur fram í árlegri leigukönnun sem mark­aðs­rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Prósent gerði fyrir Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun (HMS) 10. júní til 14. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Heild­ar­fjöldi svar­enda í könn­un­inni voru 640 og allir eldri en 18 ára.

Fjallað er um nýju leigukönn­un­ina í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS. Þar kemur fram að stærstur hluti leigu­mark­að­ar­ins leigi af ein­stak­lingi á almennum mark­aði, eða 41,9 pró­sent. Alls 18 pró­sent leigj­enda leigja af ætt­ingjum eða vinum. Hlut­deild einka­rek­inna leigu­fé­laga á mark­að­inum er um tíu pró­sent, svipað hlut­fall leigir af sveit­ar­fé­lögum, 8,6 pró­sent á stúd­enta­görðum og 4,6 pró­sent leigja nú af óhagn­að­ar­drifnum leigu­fé­lögum.

Áætla að byggja yfir þrjú þúsund almennar íbúðir fyrir lok árs 2022

Lög um almennar íbúðir voru sam­­þykkt sum­­­arið 2016. Hið nýja íbúða­­­kerfi er til­­­raun til að end­­­ur­reisa ein­hvern vísi að félags­­­­­lega hús­næð­is­­­kerf­inu sem var aflagt undir lok síð­­­­­ustu aldar með þeim afleið­ingum að félags­­­­­legum íbúðum fækk­­­aði um helm­ing milli áranna 1998 og 2017.

Mark­mið þeirra laga var að bæta hús­næð­is­ör­yggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eign­­ar­­mörkum með því að auka aðgengi að öruggu og við­eig­andi leig­u­hús­næði. Þannig sé stuðlað að því að hús­næð­is­­kostn­aður sé í sam­ræmi við greiðslu­­getu þeirra sem leigja hús­næðið og fari að jafn­­aði ekki yfir 25 pró­­sent af tekjum þeirra.

Lögin byggja á yfir­­lýs­ingu sem þáver­andi rík­­is­­stjórn Sig­­mundar Dav­­íðs Gunn­laugs­­sonar gaf út í tengslum við kjara­­samn­inga sem voru und­ir­­rit­aðir í maí 2015. Í henni var gert ráð fyrir að 2.300 íbúðir yrðu byggðar á árunum 2015 til 2018.

Lengri tíma tók hins vegar að klára lögin og fyrstu úthlut­­anir á grund­velli þeirra fóru ekki fram fyrr en á árinu 2016. Fjár­­­mála­á­ætlun síð­ustu rík­­is­­stjórnar áætlar nú að um 3.200 íbúðir verði byggðar á árunum 2016 til 2022.

Langflestar almennar íbúðir í Reykjavík

Íbúð­­irnar sem hafa fengið stofn­fram­lög eru ætl­­aðar fyrir allskyns hópa sem eru með lágar tekj­­ur. Þar ber fyrst að nefna þá félags­­hópa sem eru undir skil­­greindum tekju- og eign­­ar­við­mið­­um. Þau eru 535 þús­und krónur að með­­al­tali á mán­uði fyrir ein­stak­l­ing og 749 þús­und krónur á mán­uði fyrir hjón eða sam­­búð­­ar­­fólk. Fyrir hvert barn eða ung­­menni að 20 ára aldri sem býr á heim­il­inu bæt­­ast við 133.750 krónur á mán­uði sem má hafa í tekj­­ur. Heild­­ar­­eignir heim­il­is­ins mega þó ekki vera hærri en sem nemur 6.930.000 krón­­um. Stór hluti þess­­arar upp­­­bygg­ing­­ar, sem er afar umfangs­­mik­il, er á vegum Bjargs íbúða­­fé­lags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síð­­an, og er rekið án hagn­að­­ar­­mark­miða.

Íbúða­­kerfið er fjár­­­magnað þannig að ríkið veitir stofn­fram­lag sem nemur 18 pró­­sent af stofn­virði almennra íbúða. Stofn­virði er kostn­að­­ar­verð íbúð­­ar­inn­­ar, sama hvort það er við bygg­ingu hennar eða vegna kaupa á henni.

Lang stærstur hluti þeirra íbúða sem byggðar hafa verið í almenna íbúð­ar­kerf­inu hafa risið í Reykja­vík. Í umfjöllun sem Kjarninn birti í lok síð­asta árs var hlut­fall þeirra 73 pró­sent allra almennra íbúða sem höfðu risið á þeim tíma.

Lækkuðu leiguna

Í maí síð­ast­liðnum til­kynnti Bjarg leigu­fé­lag að það hygð­ist lækka leigu hjá um 190 leigu­tökum félags­ins. Með­alleigu­greiðslur leigu­taka áttu sam­kvæmt þeirri ákvörðun að lækka um 14 pró­sent, úr um 180 þús­und krónum í 155 þús­und. Þetta var gert í kjöl­far end­ur­fjár­mögn­unar og end­ur­skoð­unar rekstrar fjöl­býl­is­húsa Bjargs við Móa­veg og Urð­ar­brunn í Reykja­vík.

Þrátt fyrir að fast­eignir félags­ins á Akra­nesi og í Þor­láks­höfn hefðu einnig farið í gegnum end­ur­fjár­mögnun breytt­ist leigu­verð þar ekki, aðal­lega vegna breyt­inga á öðrum rekstr­ar­liðum. Félagið sagði í til­kynn­ingu í maí að leigu­verð þar væri engu að síður vera hóf­stillt og lægra en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða rúm­lega 120 þús­und krónur á mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár