Alls þiggja 49,7 prósent leigjenda húsnæðisbætur og hefur þeim fjölgað um 1,6 prósentustig milli ára. Í septembermánuði voru greiddar út alls 542 milljónir króna í slíkar bætur til rúmlega 16.200 heimila.
Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um íbúðamarkaðinn sem birt var í gær.
Þar segir enn fremur að fjárhæðin sé um 0,2 prósentustigum lægri en greidd var út í septembermánuði í fyrra en þó tekið fram að þessi tala geti hækkað.
[adspot]Húsnæðisbótaþegum fjölgaði mikið um áramótin þegar frítekjumörk húsnæðisbóta voru hækkuð. Í skýrslunni segir að árið 2019 hafi fjöldi heimila sem þáði húsnæðisbætur að meðaltali verið um 15.800 á mánuði. „Árið 2020 þegar heimsfaraldurinn skall á jókst þessi fjöldi jafnt og þétt yfir árið og var um 16.500 að meðaltali á mánuði, eða sem samsvarar 4,5 prósent hækkun á milli ára. Eftir áramót hækkaði fjöldinn vel yfir 17.000 og hefur verið að meðaltali um 17.300 fyrstu átta mánuði ársins en 17.600 fyrstu fimm mánuði ársins. Það eru miklar árstíðasveiflur í fjöldanum.“
Hlutfall leigufjárhæðar af ráðstöfunartekjum hækkar
Hlutfall leigufjárhæðar af ráðstöfunartekjum leigjenda var árum saman í kringum 40 prósent. Það þýddi að fjórar af hverjum tíu krónum sem þeir sem eru á leigumarkaði höfðu í tekjur eftir skatta fóru í að borga leigu.
[links]Það hlutfall hefur hækkað á síðustu tveimur árum. Í fyrra var það 44 prósent og í ár er það 45 prósent. Í skýrslu HMS segir að þetta geti verið vegna þess að tekjuhærri einstaklingar á leigumarkaði hafi náð að kaupa sér húsnæði eftir að vextir lækkuðu skarpt í fyrra. „Í því samhengi mátti einmitt greina versnandi fjárhag leigjenda á milli ára í fyrra en hins vegar virðist hann batna nú miðað við könnunina í ár. Afar lítið er um vanskil og aukast þau ekki á milli ára. Þá má einnig sjá að samningsstaða gagnvart leigusala versnar ögn á milli mælinga og hlutfall þeirra sem eru með þinglýstan leigusamning er á pari við könnunina í fyrra en þokast þó örlítið niður á við.“
Um tíu prósent allra leigjenda notar 70 prósent eða meira af ráðstöfunartekjum sínum til að borga húsaleigu og um fjórðungur leigjenda notar yfir helming tekna sinna í húsaleigu.
Vegið meðaltal leigufjárhæðar alls leiguhúsnæðis er sem stendur um 147 þúsund krónur á mánuði. að meðaltali er hægt að fá um 33 þúsund krónur í húsnæðisbætur til að standa undir slíkum leigukostnaði.
Töluverður munur er á því að leigja af einkaaðila og því að leigja af hinu opinbera. Að meðaltali kostar 168 þúsund krónur á mánuði að leigja af einkaaðila en 126 þúsund krónur á mánuði að leigja íbúð í eigu ríkis eða sveitarfélaga. Því er þriðjungi dýrara að leigja af einkaaðila en af opinberum aðila.
Húsnæðisbætur sem leigjendur fá eru afar sambærilegar óháð því af hverjum þeir leigja.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir