Í fyrravor voru tæplega 4.000 íbúðir til sölu – Þær eru nú 1.400 talsins

Gríð­ar­legur sam­dráttur í fram­boði á íbúðum er meg­in­á­stæða þess að fast­eigna­mark­að­ur­inn er að kólna. Þar spilar þó líka inn í hærri vextir, miklar verð­hækk­anir og aðgerðir Seðla­bank­ans til að draga úr skuld­setn­ingu heim­ila til íbúð­ar­kaupa.

Af þeim samningum sem þegar hafa verið þinglýstir voru nær 900 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði með útgáfudag í ágúst. Þeir hafa ekki verið færri síðan í maí 2020.
Af þeim samn­ingum sem þegar hafa verið þing­lýstir voru nær 900 kaup­samn­ingar um íbúð­ar­hús­næði með útgáfu­dag í ágúst. Þeir hafa ekki verið færri síðan í maí 2020. Mynd: Andrea Pacquadio/Pexels

Þegar fram­boð af íbúðum var sem mest, í maí í fyrra, voru rétt tæp­lega fjögur þús­und íbúðir til sölu á land­inu öllu. Um þessar mundir eru þær um 1.400 og fækkar milli mán­aða. Allar líkur eru á að sú fækkun haldi áfram.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar sem birt var í dag. Þar segir að um 480 íbúðir í fjöl­býli séu til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú en í byrjun árs hafi þær verið um 820 og í maí 2020 voru þær um 1.800. „Sérbýlum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hins vegar fjölgað um nærri 50 frá byrjun síð­asta mán­aðar og eru nú um 220. Á lands­byggð­inni hefur íbúðum í fjöl­býli fækkað um 40 á sama tíma­bili og eru þar nú um 240 íbúðir til sölu en sér­býlum hefur fækkað um nærri 60 og eru nú um 460.“

Aðeins voru 80 nýjar íbúðir aug­lýstar til sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í byrjun októ­ber 2021 en þær voru um 114 í byrjun síð­asta mán­aðar og yfir 900 í maí 2020. Þá eru 64 nýjar íbúðir til sölu í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og 19 ann­ars staðar á land­inu.

Íbúðaverð hækkað um fimmtung frá byrjun árs 2020

Þrátt fyrir þetta heldur þeim íbúðum sem seldar eru yfir ásettu verði áfram að fækka milli mán­aða og sölu­tími íbúða lengd­ist. Það bendir til þess að mark­að­ur­inn sé að kólna eftir mikið ris und­an­farið eitt og hálft ár.

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 20,6 pró­sent frá byrjun síð­asta árs sam­kvæmt sam­an­tekt Þjóð­skrár. Þorri hækk­un­ar­innar átti sér stað eftir að Seðla­banki Íslands lækk­aði stýri­vexti niður í sögu­legt lág­mark, 0,75 pró­sent, og afnám sveiflu­jöfn­un­ar­auka á eigin fé banka, sem þeir nýttu til að stór­auka útlán til íbúð­ar­kaupa.

[adspot]Und­an­farið hefur Seðla­bank­inn verið að reyna að kæla þennan markað með því að hækka vexti, en hús­næð­is­verð hefur drifið áfram verð­bólgu sem mælist 4,4 pró­sent, og tölu­vert yfir 2,5 pró­sentu­stiga mark­miði bank­ans.

Vegna þessa var ákveðið í júní að hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls fast­eigna­lána til neyt­enda lækkað úr 85 í 80 pró­sent en hámarks­hlut­fall fyrir fyrstu kaup­endur hélst óbreytt í 90 pró­sent. Í síð­asta mán­uði ákvað fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands svo að setja reglur um hámark greiðslu­byrðar á fast­eigna­lán­um og end­ur­vekja sveiflu­jöfn­un­ar­auk­ann. Stýri­vextir hafa sömu­leiðis hækkað um 0,75 pró­sentu­stig á nokkrum mán­uðum og eru nú 1,5 pró­sent.

Lítið framboð skýri kólnun

Sam­an­dregið hafa ofan­greindar aðgerðir dregið úr spennu á fast­eigna­mark­aði. Það end­ur­spegl­ast, sam­kvæmt HMS, í fækkun kaup­samn­inga og minni veltu.

Minnk­andi umsvif á íbúða­mark­aði megi þó lík­leg­ast skýra að miklu leyti með litlu fram­boði af íbúðum til sölu en það hafi haldið aftur af veltu síð­ustu mán­uði og einnig að ein­hverju leyti miklar verð­hækk­anir. „Af þeim samn­ingum sem þegar hafa verið þing­lýstir voru nær 900 kaup­samn­ingar um íbúð­ar­hús­næði með útgáfu­dag í ágúst. Þeir hafa ekki verið færri síðan í maí 2020 en fyrstu áhrif COVID-19 á fast­eigna­mark­að­inn voru fremur nei­kvæð til að byrja með. Þótt búast megi við að tölur um fjölda útgef­inna samn­inga hækki örlítið eftir því sem þing­lýs­ingum vindur fram verða þær breyt­ingar að öllum lík­indum smá­vægi­legar,“ segir í skýrslu HMS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár