Bankarnir bjóða ekki lengur upp á lægstu vextina

Í byrjun árs í fyrra voru óverð­tryggð lán 27,5 pró­sent af heildar­í­búða­lánum til heim­ila. Nú er hlut­fallið komið yfir 50 pró­sent. Þessi breyt­ing gæti stuðlað að því að Seðla­bank­inn þurfi ekki að hækka stýri­vexti jafn skarpt til að slá á eft­ir­spurn.

Þegar líf­eyr­is­sjóð­irnir komu aftur af alvöru inn á íbúða­lána­markað haustið 2015, með því að hækka láns­hlut­fall sitt og bjóða mun lægri verð­tryggða vexti en bankar lands­ins, þá sóp­uðu þeir til sín við­skipta­vinum. Lands­menn sýndu það með fót­unum að þeir voru með­vit­aðir um hvar bestu kjörin væru.

Í fyrra, sam­hliða því að stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru lækk­aðir stór­kost­lega niður í 0,75 pró­sent, átti sér stað til­færsla til bank­anna að nýju, og nú í óverð­tryggð lán. Ástæðan var ein­föld: þeir buðu betur og líf­eyr­is­sjóð­irnir voru farnir að reka sig upp í þakið á því sem þeir gátu lánað sjóðs­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa.

Nú bjóða bank­arnir hins vegar ekki lengur lægstu óverð­tryggðu vext­ina, heldur líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi. Sem stendur eru óverð­tryggðir vextir hans á 75 pró­sent láni um 3,55 pró­sent. Til sam­an­burðar býður Lands­bank­inn lægstu óverð­tryggðu vext­ina af bönk­unum í dag, 3,65 pró­sent upp að 70 pró­sent veð­hlut­falli og 4,65 pró­sent upp að 85 pró­sent veð­hlut­falli. Vegnir með­al­vextir fyrir 75 pró­sent lán nema því 3,72 pró­sent, sem er hærra en hjá Gildi.

Þann fyr­ir­vara verður þó að setja á þessar tölur að Gildi hefur þegar boðað 0,2 pró­sentu­stiga hækkun vaxta í byrjun næsta mán­aðar og við­skipta­bank­arnir hafa ekki til­kynnt hvort og þá hvernig þeir ætla að bregð­ast við nýj­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands um 0,25 pró­sentu­stig. Frá því að vaxta­hækk­un­ar­ferli bank­ans hófst í maí hafa bank­arnir, sem eru að sýna met­hagnað um þessar mundir, ætið brugð­ist við með því að hækka íbúða­lána­vexti sem bjóð­ast heim­ilum lands­ins. Því er senni­leg­ast að Gildi muni áfram vera með lægstu vext­ina í byrjun næsta mán­aðar.

Hins vegar bjóða bank­arnir áfram hærri lán og hærra veð­hlut­fall og líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða áfram hag­stæð­ustu kjörin á verð­tryggðum lánum.

Flóttinn yfir í óverðtryggð lán gæti leitt til minni vaxtahækkana

Aðra skýra vís­bend­ingu um aukna neyt­enda­með­vit­und heim­ila lands­ins þegar kemur að íbúða­lánum má sjá í til­færslu þeirra milli fyrst verð­tryggðra lána yfir í óverð­tryggð, þegar þau urðu ódýr­ari, og síðan með til­færslu úr breyti­legum í fasta vexti, þegar vaxta­hækk­un­ar­ferli Seðla­banka Íslands hófst seint í vor.

Hlutfall óverð­tryggðra lána af heildar­í­búða­lánum til heim­il­anna var 27,5 pró­sent í jan­úar í fyrra. Í ágúst síð­ast­liðnum var það hlut­fall hins vegar komið upp í 50,2 pró­sent. Í skýrslu HMS er bent á að eftir því sem hlut­deild óverð­tryggðra íbúða­lána eykst sé við­búið að miðlun pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans verði virk­ari. „Breyt­ingar á stýri­vöxtum munu hafa meiri áhrif á hag­kerfið í heild þegar stærra hlut­fall af heildar­í­búða­lánum til heim­il­anna eru óverð­tryggð þar sem óverð­tryggðir vextir eru næm­ari fyrir stýri­vaxta­breyt­ingum. Þessi þróun getur leitt til þess að Seðla­bank­inn þurfi ekki að hækka vexti eins mikið til að slá á eft­ir­spurn og ef hlut­fall óverð­tryggðra lána væri lægra.“

Sóknin í fast­vaxta­lánin eftir að vextir tóku að hækka er líka nokkuð skýr í töl­unum sem HMS birtir í skýrsl­unni sinni. Þar kemur fram að í ágúst hafi 61 pró­sent af nýjum óverð­tryggðum útlánum inn­láns­stofn­ana til heim­il­anna verið fast­vaxta­lán á meðan 39 pró­sent voru á breyti­legum vöxtum. „Aukning á hlut­falli fast­vaxta­lána bendir til þess að heim­ilin búist við tölu­verðum vaxta­hækk­unum þar sem bilið á milli fastra vaxta og breyti­legra er breitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár