„Takmarkanir á réttindum fólks og inngrip í einkalíf þess þarf að rökstyðja“

Þing­maður Við­reisnar gerði smitrakn­ing­ar­for­rit heil­brigð­is­yf­ir­valda að umtals­efni á þing­inu í dag. Hún velti því fyrir sér hvort nauð­syn­legt væri af stjórn­völdum að not­ast við slíkt for­rit þegar staðan væri sú að smit eru lítil sem engin í sam­fé­lag­inu.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar, telur að nú þurfi að staldra við og taka sam­talið um smitrakn­ing­ar­for­rit stjórn­valda. Hún hélt ræðu á Alþingi í dag undir liðnum störf þings­ins en þar minnti hún á það að tak­mark­anir á rétt­indum fólks og inn­grip í einka­líf þess þyrfti að rök­styðja og nálg­ast sem frá­vik.

„Síðustu vikur hafa örfá COVID-19 smit greinst og við erum auð­vitað öll þakk­lát sér­fræð­ingum okkar fyrir góðan árangur og eigum sömu­leiðis að vera þakk­lát almenn­ingi sem lagði mikið á sig til að hefta útbreiðslu far­ald­urs­ins. Þessar aðgerðir og tak­mark­anir voru auð­vitað nauð­syn­legar.

Mestu tak­mörk­unum hefur nú verið aflétt en eftir stendur sumt, þar á meðal smitrakn­ing­arappið. Við aðrar aðstæður hefði svona app á vegum stjórn­valda sem safnar upp­lýs­ingum um ferðir ein­stak­linga þótt meiri háttar inn­grip í frið­helgi einka­lífs og vakið mikla umræðu. Þjóðin sýndi hins vegar ábyrgð og hún sýndi traust en um þriðj­ungur þjóð­ar­innar sótti þetta app sem var kynnt sem tíma­bundin ráð­stöfun. Með því létti þjóðin vinnu smitrakn­ing­arteymis sótt­varna­læknis og rík­is­lög­reglu­stjóra. Núna þegar opna á landið þá munu ferða­menn ann­ars vegar und­ir­gang­ast skimun, sem er auð­vitað mik­il­væg og nauð­syn­leg for­senda, en þeir verða líka hvattir til að sækja þetta app sem myndi þá rekja ferðir þeirra hér­lendis. Þjóðin er sömu­leiðis hvatt til að halda áfram að nota appið,“ sagði hún.

Þorbjörg Sigríður spurði í fram­hald­inu hvort það væri virki­lega nauð­syn­legt af stjórn­völdum að not­ast við rakn­ing­ar­for­rit þegar staðan væri sú að smit eru lítil sem engin í sam­fé­lag­inu. „Erum við þá ekki farin að nálg­ast grund­vall­ar­rétt­indi eins og frið­helgi einka­lífs af tölu­verðri léttúð? Mér finnst vanta sam­talið hérna. Ættu stjórn­völd ekki að sýna sömu ábyrgð og almenn­ingur gerði? Þrátt fyrir tvö­falt sam­þykki, að not­andi þurfi að sam­þykkja appið og síðan að gefa sam­þykki fyrir notkun upp­lýs­ing­anna, stendur eftir að aðgerðin er bein­línis hönnuð til að safna upp­lýs­ingum um fólk til að afhenda stjórn­völdum þær. Á meðan appið er í sím­anum eru ferðir fólks raktar.“

Í því ljósi spurði hún hvort stjórn­völd ættu ekki að leiða sam­tal um það hvenær þau sæju eig­in­lega fyrir sér að þess­ari ráð­stöfun linni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár