Byssumaðurinn reyndi að fremja sjálfsmorð

Vester Lee Flanigan, maðurinn sem er talinn hafa myrt tvo frétta­menn á WDBJ7 sjónvarps­stöðinni í dag, skaut sjálfan sig í bíl sínum að sögn lögreglu í Virginíu, þar sem morðin voru framin. Misvísandi fréttir eru um það hvort hann er látinn eða ekki. Fyrstu fregnir hermdu að hann væri látinn en nú segja einhverjir fjöl­miðlar að hann sé í lífshættu.

Flanigan starfaði á sjónvarps­stöðinni til ársins 2013. Hann gekk undir nafninu Bryce Williams.


VA shooter Vester Lee Flanagan is a former employee of @WDBJ7, reported under the name Bryce Williams pic.twitter.com/3qBDgQ684q


— CBS News (@CBSNews) August 26, 2015

Frétta­konan Allison Parker og töku­maðurinn Adam Ward voru myrt í beinni útsendingu og viðmælandi þeirra særðist en er á batavegi eftir aðgerð.

Flanigan tók morðin sjálfur upp á myndband og setti mynd­bandið inn á samfélags­miðla­síður sínar, á Facebook og Twitter. Búið er að loka reikningum hans þar.

Parker og Ward voru að taka upp viðtal í bænum Moneta í Bedford-sýslu, sem er í Virginiu-ríki í Banda­ríkjunum. Samkvæmt frétt BBC um málið átti árásin átti sér stað klukkan 06:45 að staðar­tíma í stórri verslunar­miðstöð, Bridgewater Plaza. Vicki Gardner, formaður viðskipta­ráðs svæðisins, sem var viðmælandi Parker lifði af árásina en slasaðist umtals­vert. Samkvæmt frétt Roanoke Times er hún í bráða­aðgerð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár