Hádegisverður með Warren Buffett sleginn á röskar 300 milljónir

Hádegis­matur með fjár­festinum Warren Buffett var sleginn hæstbjóðanda fyrir 2,35 milljónir bandaríkjadalam eða ríflega 314 milljónir íslenskra króna, á föstu­daginn. Kínverska leikja­fyrirtækið Da Lian Zeus Entertainment átti hæsta boðið í hádegismat með fjár­festinum heims­fræga. CNN Money greinir frá málinu.

Buffett efnir til uppboðs á eBay árlega, þar sem hann býður upp hádegis­verð með sér, en ágóðinn af uppboðinu rennur allur til góðgerðar­mála. Á síðasta ári pungaði viðskipta­jöfur frá Singapúr út 2,2 milljónum dala fyrir að spjalla við Buffett yfir málsverði í hádeginu. Hæsta verð sem fengist hefur fyrir hádegis­verð með bandaríska fjár­festinum eru 3,5 milljónir bandaríkja­dala, eða hátt í hálfur milljarður íslenskra króna, árið 2012. Sá sem átti hæsta boðið þá óskaði nafn­leyndar.

Samkvæmt skilmálum uppboðsins má sá sem á hæsta boðið taka með sér allt að sjö vini til hádegis­máls­verðarins, sem fer venjulega fram á sama steik­húsinu í New York.

Margir sem taka þátt í uppboðinu vonast til þess að fá tækifæri til að vinna með Buffett, og reyna hvað þeir geta eina hádegis­stund til að sannfæra bandaríska auðkýfinginn um ágæti sitt. Síðan árið 2004 hefur hins vegar einungis einum áhuga­sömum tekist að ráða sig til vinnu hjá Buffett, en sá átti hæsta boð í hádegis­verðinn tvö ár í röð og þurfti að reiða fram samtals 5,3 milljónir bandaríkja­dala.

Fæstir fá að vinna með Buffett, en eru þakklátir fyrir þau góðu ráð sem hann gefur sessu­nautum sínum er þeir snæða hádegis­matinn. Á síðustu fimmtán árum hefur Buffett safnað ríflega 20 milljónum dala til góðgerðar­samtaka.

Árið 2010 tilkynnti Buffett, ásamt Bill og Melinda Gates, að hann muni gefa nær allan auð sinn frá sér á lífs­leiðinni eða í erfðaskrá. Framtakið heitir Giving Pledge, en hundruð milljarðamæringa hafa nú þegar ákveðið að taka þátt í verk­efninu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár