Vilja að Lögbirtingablaðið verði ókeypis fyrir alla

Þingmenn þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokka leggja til í nýju frum­varpi að aðgengi að raf­rænni útgáfu Lög­birt­inga­blaðs­ins verði not­endum að kostn­að­ar­lausu.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Níu þing­menn úr þremur flokkum, Pírötum, Flokki fólks­ins og Sam­fylk­ing­unni, hafa lagt fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um Stjórn­ar­tíð­indi og Lög­birt­inga­blað og lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs. Ef frum­varpið verður sam­þykkt munu les­endur Lög­birt­inga­blaðs­ins ekki greiða fyrir aðgang að því.

Fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins er Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata en með honum eru þau Andrés Ingi Jónsson, Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, Gísli Rafn Ólafsson, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, Tómas A. Tómasson, Helga Vala Helga­dóttir og Jóhann Páll Jóhanns­son.

Fram kemur í frum­varp­inu að við raf­ræna útgáfu skuli tryggja öryggi og áreið­an­leika birtra upp­lýs­inga og að þær varð­veit­ist á var­an­legan hátt og gagna­snið útgáf­unnar sé opið og aðgengi­legt. Rafrænni útgáfu Lög­birt­inga­blaðs skuli hagað þannig, eftir því sem tækni­lega er unnt, að komið sé í veg fyrir úrvinnslu og sam­teng­ingu per­sónu­upp­lýs­inga sem birtar eru. Við raf­ræna útgáfu skuli útgáfu­dagur til­greindur.

Haga skuli útgáfu Stjórn­ar­tíð­inda og Lög­birt­inga­blaðs þannig að vél- og hug­bún­aður sem flestra nýt­ist. Skulu þeir sem þess óska geta keypt Stjórn­ar­tíð­indi eða Lög­birt­inga­blað í prent­uðu formi í áskrift eða fengið ein­stök tölu­blöð send gegn greiðslu kostn­aðar af prentun þeirra og send­ingu.

Rafræn áskrift kostar 3.000 krónur á ári

Dóms­mála­ráðu­neytið gefur út Lög­birt­inga­blað en það kom fyrst út í prent­uðu formi í árs­byrjun 1908 og var þá gefið út einu sinni í viku. Síðan hefur Lög­birt­inga­blað verið gefið út í prent­uðu formi óslitið til dags­ins í dag.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef Lög­birt­inga­blaðs­ins hefur útgáfan vaxið jafnt og þétt und­an­farin ár og hefur síð­ustu árin verið yfir 1.200 blað­síður á ári. Í árs­byrjun 2002 var ákveðið að gera blaðið einnig aðgengi­legt á net­inu og er nú hægt að nálg­ast þar öll tölu­blöð sem komið hafa út frá 1. jan­úar 2001.

Samkvæmt lögum skal birta í Lög­birt­inga­blaði dóms­mála­aug­lýs­ingar, svo sem stefnur til dóms, úrskurði um töku búa til opin­berra skipta og áskor­anir um kröfu­lýs­ingar, aug­lýs­ingar um skipta­fundi og skipta­lok þrota­búa, nauð­ung­ar­sölur, þar á meðal á fast­eignum búa sem eru til opin­berra skipta, aug­lýs­ingar um vog­rek, óskilafé og fundið fé, aug­lýs­ingar um kaup­mála hjóna, lög­ræð­is­svipt­ingu og brott­fall hennar, lög­boðnar aug­lýs­ingar um félög og firmu, sér­leyfi er stjórn­völd veita, opin­ber verð­lags­á­kvæði og annað það er stjórn­völdum þykir rétt að birta almenn­ingi.

Rafræn áskrift af Lög­birt­inga­blað­inu kostar 3.000 krónur á ári.

Allt yrði aðgengilegt á tölvutækan hátt á aðgengilegu og opnu gagnasniði í opinni gagnagátt

Í grein­ar­gerð­inni með frum­varp­inu segir að með þess­ari laga­breyt­ingu yrði það gert að skyldu að Stjórn­ar­tíð­indum og Lög­birt­inga­blaði yrði dreift á raf­rænan hátt, að aðgengi að raf­rænni útgáfu yrði not­endum að kostn­að­ar­lausu og að allt sem birt er í þessum ritum yrði aðgengi­legt á tölvu­tækan hátt á aðgengi­legu og opnu gagna­sniði í opinni gagna­gátt, til dæmis opin­gogn.is.

Samhliða því er lagt til að fella brott grein úr lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs enda yrði ekki lengur kveðið á um í lögum um Stjórn­ar­tíð­indi og Lög­birt­inga­blað að greiða skyldi gjald fyrir raf­rænan aðgang að Lög­birt­inga­blaði sam­kvæmt lögum um auka­tekjur rík­is­sjóðs.

Hægt að nálgast ársreikninga íslenskra fyrirtækja án endurgjalds

Þau tíma­mót urðu í byrjun árs 2021 að hægt var að nálg­ast árs­reikn­inga íslenskra fyr­ir­tækja án end­ur­gjalds eftir að lög þess efnis tóku gildi. Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, þáver­andi nýsköp­un­ar- og ferða­mála­ráð­herra, lagði frum­varpið fram en Björn Leví Gunn­ars­son þing­maður Pírata hafði end­ur­tekið flutt sam­bæri­leg frum­vörp þar sem afnám gjald­­töku á upp­lýs­ingum úr árs­reikn­ingum var lagt til.

Björn Leví flutti frum­varp um afnám gjald­töku fyrir aðgang að árs­reikn­ingum í sept­em­ber árið 2017 og svo aftur í des­em­ber sama ár. Það frum­varp fór í fyrstu umræðu í efna­hags- og við­skipta­nefnd sem kall­aði eftir umsögnum um mál­ið, en rataði svo aldrei það­an. Emb­ætti rík­is­skatt­stjóra skrif­aði umsögn um frum­varpið á sínum tíma og sagði það kippa fótum undan rekstri þess. Enn fremur líkti emb­ættið afnámi gjald­tök­unnar við það að gera aðgang að söfnum lands­ins ókeyp­is.

Rík­­is­skatt­­stjóri sagði að ef fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar fram að ganga þá væri æski­­legt að veitt yrði heim­ild til að setja reglu­­gerð um afmörkun þeirra upp­­lýs­inga sem veita ætti gjald­frjálst aðgengi að og fram­­kvæmd hins raf­­ræna aðgeng­­is. „Hvort heldur átt er við ein­stakar upp­­flett­ingar almenn­ings eða aðgang fyr­ir­tækja að gagna­grunnum eða afritun ein­stakra skráa vegna úrvinnslu upp­­lýs­inga.“

Björn Leví end­ur­flutti sama frum­varpið þrisvar sinnum á árunum 2017 til 2019, en það komst aldrei úr nefnd. Í apríl árið 2020, rúmu hálfu ári eftir þriðja end­ur­flutn­ing Björns Levís kom Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð svo fram með eigið frum­varp sem sneri að árs­reikn­ingum og end­ur­skoðun á þeim en í því var lagt til að aðgengi að árs­reikn­ingum yrði gjald­frjálst. Frum­varpið var sam­þykkt sum­arið 2020, en lögin tóku gildi við upp­haf 2021, eins og áður segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár