Matorka og stofnendur félagsins hafa fengið 90 milljónir frá Rannís

Stofn­endur fiskeldis­fyrir­tækisins Matorku hafa fengið tæplega 90 milljónir króna úr tækni­þróunar­sjóði Rannsóknar­miðstöðvar Íslands (Rannís) frá árinu 2010.

Fyrir­tækið, sem hét áður Íslensk matorka ehf., fékk tæplega 27 milljóna króna styrk árið 2011 til þriggja ára vegna verk­efnisins „Úr grænum haga í fiskimaga.“ Meðumsækjendur Íslenskrar matorku um styrkinn voru Laxá ehf., Fóður­blandan hf., Matís og Háskóli Íslands. Markmið verk­efnisins, samkvæmt vefsíðu Rannís, var að lækka fóður­kostnað í fiskeldi og þróa ný íslensk hráefni í fóður sem eru ódýr, umhverfisvæn og sjálfbær.

Ragn­heiður Inga Þórarins­dóttir, verk­fræðingur, sem átti upphaf­lega þriðjungs­hlut í Íslenskri matorku við stofnun félagsins í gegnum félagið Svinna-verkfræði ehf., var fyrst titluð sem verkefnis­stjóri yfir verk­efninu, en Stefanía Katrín Karls­dóttir tók síðar við verk­stjórninni af Ragnheiði. Stefanía, sem er matvæla­fræðingur og viðskipta­fræðingur og fyrr­verandi bæjar­stjóri í Árborg, er sömuleiðis einn stofnanda Íslenskrar matorku og átti þriðjungs­hlut í félaginu við stofnun í gegnum félagið Nova Investment, sem hún á ásamt eigin­manni sínum Eiríki Svavars­syni hæstaréttar­lögmanni.

Milljónirnar streymdu inn


Stefanía var einnig í for­svari fyrir verk­efni sem hlaut 23,5 millj­óna króna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rannís árið 2010. Verk­efnið laut að því að byggja upp nýja útflutn­ings­grein, fram­leiðslu á hvítum mat­fiski í hlý­vatns­eldi. Þar að auki fékk Stefanía 12,5 millj­óna króna styrk úr tækni­þró­un­ar­sjóði Rann­sókn­ar­mið­stöðvar Íslands í fyrra, en með­um­sækj­endur hennar að styrknum voru Íslensk matorka og Matís. Markmið verk­efn­is­ins var að hefja þör­unga­ræktun í frá­rennsli frá fisk­eldi.

Þá hefur áðurnefnd Ragn­heiður Inga, einn af stofn­endum Íslenskrar matorku, tvívegis hlotið veglega styrki úr tækni­þróunar­sjóði Rannís. Árið 2013 fékk hún 14 milljóna króna styrk til tveggja ára frá Rannís vegna landeldis á Evrópu­humri, og í fyrra fékk hún 12,5 milljóna styrk úr tækni­þróunar­sjóðnum til verkefnis sem þróar hagkvæma fram­leiðslu á fiski og grænmeti, með því að nota jarðhita og ferskt hreint vatn. Meðumsækjendur að síðastnefnda verk­efninu voru Bioforsk, Háskóli Íslands og Land­búnaðar­háskóli Íslands.

Nú á að einbeita sér að bleikjueldi


Eins og áður segir á Ragn­heiður félagið Svinna-verk­fræði ehf. sem aftur á tæp­lega tólf pró­senta hlut í einka­hluta­fé­lag­inu Rann­sóknir og þróun, sem áður hét Matorka. Matorka Holdings, sviss­neskt móð­ur­fé­lag Matorku ehf., á ríf­lega 88 pró­senta hlut í Rann­sóknum og þróun á móti Svinnu-verk­fræði ehf.

Áðurnefnt félag Stefaníu K. Karls­dóttur og Eiríks Svavars­sonar, Nova Investment, á 15 prósenta hlut í Matorku Holdings. Þá á félagið Landás tæplega 15 prósenta hlut í móður­félagi Matorku ehf., en það félag er í eigu Sjafnar Sigur­gísladóttur, fyrr­verandi forstjóra Matís, og var þriðja félagið sem kom að stofnun Íslenskrar matorku árið 2010.

Tækni­þróunar­sjóður Rannsóknar­miðstöðvar Íslands hefur þannig frá árinu 2010 ýmist styrkt stofn­endur Matorku eða félagið sjálft í samvinnu við aðra, um tæplega 90 milljónir króna vegna ýmissa verkefna. Eins og kunnugt er gerði félagið umdeildan fjár­festinga­samning við ríkið á dögunum vegna fyrir­hugaðs bleikju­eldis á Reykjanesi. Samkvæmt frétt Viðskipta­blaðsins um málið gætu ívilnanir fjár­festinga­samningsins numið hátt í 60 prósentum af heildar­fjár­festingu Matorku vegna verk­efnisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár