Flugmaður rekinn eftir „selfie“ í miðju flugi

Japanska flug­félagið Japan Airlines leysti á dögunum flugmann frá störfum eftir að hann tók svokallaða „sjálfu,“ eða selfie-ljósmynd af sjálfum sér og ungri flug­freyju er hann flaug farþega­þotu félagsins. Frétta­miðillinn Bloomberg greinir frá málinu.

Í tilkynningu frá flug­félaginu kemur fram að rekja megi uppsögn flug­mannsins til brota hans á reglum þar sem kveðið sé á um að flugmenn séu ávallt á tánum „á vaktinni.“

Ljós­myndin örlaga­ríka var tekin þann 7. júní síðastliðinn á flugleið frá Norður-Japan til Osaka, en þá hafði annar flugmaður farþega­vélarinnar brugðið sér á salernið. Þá gerði hinn flug­maðurinn sér lítið fyrir, kallaði á flug­freyju og sagði henni að setjast í autt flugmanns­sætið og tók mynd af þeim í flug­stjórnar­klefanum. Farþega­þotan var þá í 10.000 feta hæð.

Ekki liggur fyrir hvernig japanska flug­félagið komst á snoðir um mynda­tökuna, þar sem myndin rataði ekki á samfélags­miðla. Flug­félagið hefur ekki svarað fyrir­spurnum frétta­miðilsins Quartz um atvikið, sem sömuleiðis fjallar um málið.

Víða pottur brotinn


Reglur um notkun raf­tækja í eigin þágu í flug­stjórn­ar­klefum far­þega­flug­véla eru mis­mun­andi eftir löndum. Í Banda­ríkj­unum er flug­mönnum óheim­ilt að nota raf­tæki í flug­stjórn­ar­klefum far­þega­flug­véla í eigin þágu, nema í neyð­ar­til­vikum. Þá er allt óvið­kom­andi áreiti harð­bannað í stjórn­klefum flug­véla í flug­taki, lend­ingu og er vélin er á ferð á jörðu niðri.

Samkvæmt rannsókn Quartz frá því í fyrra, eru brot á reglunum útbreidd á meðal flugmanna, en dæmi eru um að flugmenn taki myndir af sér eða öðrum á flugi og setji inn á samfélags­miðilinn Instagram.

Í umfjöllun Quartz var haft eftir loftferða­eftirlits­mönnum að farþega­flugvél hafi aldrei lent í óhappi vegna þess að flugmenn voru að nota raftæki sín í vinnunni. Hins vegar hafi slík tilvik komið upp hjá öðrum loftförum. Samkvæmt bandarískum yfir­völdum olli sjálfa flugslysi nærri Denver í Colorado ríki, þar sem tveir flugmenn létu lífið. Þá sakaði flugnemi kennarann sinn um að hafa verið í mynd­símtali í símanum sínum rétt áður en þyrla sem þeir flugu brotlenti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár