Þorgerður Katrín: Þorir ríkisstjórnin ekki með ESB fyrir þingið?

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, fyrr­verandi vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins og fyrr­verandi menntamála­ráðherra, spyr að því á Twitter rétt í þessu hvort ríkis­stjórn Íslands þori ekki „með sinn trausta þing­meirihluta“ að fara með Evrópu­sambands­málin fyrir utan­ríkismála­nefnd þingsins og svo Alþingi Íslendinga.

Þorir ríkis­stjórnin ekki með sinn trausta þing­meirihluta að fara með ESB-málið fyrir Utan­ríkismála­nefnd og Alþingi Íslendinga? #kjark­leysi

— þorgerður katrín (@thorgkatrin) March 12, 2015

Eins og greint var frá í kvöld hefur ríkis­stjórn Íslands ákveðið að tilkynna Evrópu­sambandinu að hún líti svo á að Ísland sé ekki lengur í hópi umsóknar­ríkja um aðild að ESB. Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra afhenti utan­ríkis­ráðherra Lettlands, sem fer með formennsku í ESB nú um stundir, bréf þess efnis á fundi þeirra í dag. Gunnar Bragi segir sjálfur á Facebook að ný stefna ríkis­stjórnarinnar yfirtaki skuld­bindingar fyrri ríkis­stjórnar í aðildar­ferlinu. Hann svaraði ekki spurningu frétta­manns RÚV um það hvort ekki hefði átt að fara með málið í gegnum þingið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár