Wall Street Journal: Olíuverð gæti haldist lágt í mörg ár

Olíuverð gæti haldist lágt í mörg ár til viðbótar, að því er segir í umfjöllun Wall Street Journal. Er þar einkum horft til þess að nýjar hagtölur úr heims­búskapnum, ekki síst frá Kína, sýna minnkandi eftir­spurn og efnahags­legan slaka sem þrýsti ekki á um að verðið hækki.

Á undan­förnum dögum hefur verið lítillega hækkað, eða úr rúmlega 50 Bandaríkja­dölum fatið í um 55 dali, en það er samt órafjarri þeim hæðum sem það var í fyrir um 10 mánuðum en þá kostaði fatið um 110 Bandaríkja­dali.

Í umfjölluninni segir enn fremur að sérhæfðir fjár­festar horfi til þess að verðið þurfi að hækka, í að minnta kosti 63 dali á fatið, svo það borgi sig að auka fram­leiðslu á nýjan leik. Fram­tíðarsýn fjárfesta, eins og hún birtist í viðskiptum á markaði í augna­blikinu, geri ráð fyrir að verðið muni ekki ná því marki á næstu tólf mánuðum.


Top 6 reasons oil prices are headed lower #oil #price http://t.co/Nmd4j5A8kc


— The Oil Price (@theoilprice) May 7, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár