Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur iðulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum, að mati fjöl­miðilsins. Sem fyrr eru fréttirnar af ýmsum toga.


  1. Leitar­flugvél hefur staðsett brak indónesískrar farþega­vélar sem hvarf af ratsjám um helgina. Fjörutíu og fjórir farþegar voru um borð í vélinni en enginn er talinn hafa lifað af.

  2. Samdráttur varð í lands­framleiðslu Japan um 0,4% á síðasta ársfjórðungi í fyrsta sinn síðan á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

  3. Banda­ríkin og bandamenn þeirra hafa gert 22 loft­árásir sem beinast að Íslamska ríkinu á undan­förnum sólar­hring. Árásirnar voru gerðar í Sýrlandi og Írak.

  4. Að minnsta kosti fjórir eru látnir eftir að tvær litlar flugvélar rákust saman í lofti í Banda­ríkjunum, við landa­mærin við Mexíkó, í gær.

  5. Búið er að samþykkja ströng hryðjuverkalög í Egypta­landi, en samkvæmt þeim mun hver sá sem er fundinn sekur um að koma á laggirnar eða leiða hryðjuverka­samtök eiga dauða­refsingu yfir höfði sér.

  6. 48 milljónir kjúklinga og kalkúna hafa drepist í fuglaflensu­faraldri í Banda­ríkjunum. Þetta er versti faraldur flens­unnar frá upphafi, og búist er við að verð á eggjum muni hækka verulega vegna þessa.

  7. Þjóðar­dagblað stjórn­valda í Kína segir að ekki verið með neinum hætti reynt að fela ástæður þess að miklar sprengingar urðu í verksmiðju í Tianjin í síðustu viku. Að minnsta kosti 114 manns létust í sprengingunum. Mikið hefur verið rætt um möguleg tengsl eigenda verksmiðjunnar við Kommúnista­flokkinn.

  8. Gengi kínverska yuan-sins gagnvart Bandaríkja­dollar hefur styrkst um 0,01% eftir að hafa veikst þrjá daga í röð fyrir helgi.

  9. Edina Hayes var stungin til bana á götu úti í New York um helgina. Hún var barnabarn leikarans Morgan Freeman og hefur málið vakið mikla athygli. Þrítugur karlmaður hefur verið hand­tekinn vegna morðsins.

  10. Andy Murray bar sigur úr býtum á Montreal meistara­mótinu í tennis um helgina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár