Maður lést þegar flóttafólk reyndi að komast í Ermasundsgöngin

Ungur maður frá Súdan fannst látinn í morgun í Calais í Frakk­landi, þar sem Erma­sundsgöngin yfir til Bretlands eru. 1.500 tilraunir voru gerðar í nótt til að komast inn í göngin.

Maðurinn sem lést er sagður á aldrinum 25 til 30 ára og frá Súdan. Líklegt er talið að hann hafi orðið fyrir vöru­flutningabíl sem verið var að flytja úr ferjunni sem einnig fer yfir Erma­sundið. Maðurinn er níundi flótta­maðurinn sem lætur lífið í eða við göngin á undan­förnum vikum, en gríðar­legur fjöldi fólks hefur reynt að komast um göngin. Öryggis­eftirlit hefur verið hert til muna í Calais til að koma í veg fyrir að flótta­fólk geti komist um borð í flutninga­bíla og önnur farartæki til að komast til Bretlands.

Theresa May, innan­ríkis­ráðherra Bretlands, stjórnar nú neyðar­fundi vegna vandans.

Samkvæmt nýjustu tölum Frakka eru um þrjú þúsund manns í bráðabirgða­flóttamanna­búðum í Calais. Flestir eru frá Eþíópíu, Eritreu, Súdan og Afganistan.

Um tvö þúsund manns reyndu að komast í gegnum girðingarnar við Erma­sundsgöngin á mánudag. Stjórn­endur ganganna hafa gagnrýnt stjórn­völd vegna úrræða­leysis, ástandið væri óásættanlegt. Bresk stjórn­völd ætla að verja sjö milljónum punda í að styrkja girðingar og aðrar öryggis­ráðstafanir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár