Fimm taka þátt í oddvitakjöri Sjálfstæðisflokksins

Fimm hafa gefið kost á sér odd­vita­sæti borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.

Fimm munu bít­ast um að verða leið­togar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Þetta stað­festir Gísli Kr. Björns­son for­maður Varðar, félags sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík í sam­tali við Kjarnann. Borg­ar­full­trú­arnir Kjartan Magn­ús­son og Áslaug Frið­riks­dóttir til­kynntu um fram­boð í leið­toga­kjör­inu sem fram fer 27. jan­úar fyrir nokkru síðan. Á síð­ustu dögum hafa Eyþór Arnalds, einn aðal­eig­anda Morg­un­blaðs­ins og fjár­festir, og Vil­hjálmur Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, bæst í hóp­inn.

Fimmti fram­bjóð­and­inn er Viðar Guðjohn­sen eldri sem til­kynnti um fram­boð sitt stuttu áður en fram­boðs­frestur rann út nú klukkan 16 í dag.

Síðustu daga hafa margir sem orð­aðir voru við fram­boð í leið­toga­kjör­inu gefið afsvar um fram­boð. Á meðal þeirra eru Ásdís Halla Braga­dóttir, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garðabæ, Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis, Borgar Þór Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra, Halla Tóm­as­dóttir, sem bauð sig fram til for­seta sum­arið 2016, og Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar. Þá lá Jón Karl Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri hjá Isavia, undir feldi en hann gaf afsvar í byrjun viku.

Halldór Hall­dórs­son, sem var odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014, til­kynnti um það í ágúst síð­ast­liðnum að hann ætl­aði ekki að bjóða sig fram að nýju.

Leið­toga­kjör Sjálf­stæð­is­manna í Reykja­vík fer fram hinn 27. jan­úar næst­kom­andi. Fram­boðs­frestur verður tvær vikur. Fyr­ir­komu­lagið verður á þann veg að kosið verður um odd­vita list­ans en upp­still­ing­ar­nefnd mun sjá um að raða í önnur sæti list­ans.

Sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar fara svo fram 26. maí næst­kom­andi.

Ýmsir íhuguðu framboð

Þrír fram­bjóð­endur sem höfðu alvar­lega íhugað fram­boð, þau Björn Jón Bragason, Vala Páls­dóttir og Ólafur Arnarson, ákváðu í dag að gefa ekki kost á sér.

Í sam­tali við Kjarnann í dag sagði Björn Jón, sem er sagn­fræð­ingur og rit­höf­undur, að hann muni ekki gefa kost á sér í leið­toga­kjör­inu en að hann hygg­ist sækj­ast eftir sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar.

Vala, sem er for­maður Lands­sam­bands sjálf­stæð­iskvenna, birti yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni þar sem hún sagði að það hefði ekki hvarflað að sér að hún ætti jafn góðan og víð­tækan stuðn­ing í borg­ar­mál­inu og raun bar vitni, og það úr ólíkum áttum. „Ég hef hugsað málið mjög vel og hef tekið þá ákvörðun að bjóða mig ekki fram í leið­toga­próf­kjörið. Ég er þó mjög þakk­lát fyrir alla þá hvatn­ingu og stuðn­ing sem ég hef fundið fyrir.“

Ólafur birti sömu­leiðis yfir­lýs­ingu á sama vett­vangi. Þar segir Ólafur að fyr­ir­fram hafi hann ekki haft nein áform um fram­boð, en að honum hafi borist áskor­anir um að gera slíkt. „Ég hef hugsað það gaum­gæfi­lega hvort nú sé rétti tím­inn fyrir mig að bjóða mig fram til þessa verks. Þetta er mjög per­sónu­leg ákvörðun. Svona ákvörðun snertir ekki bara þann sem veltir fyrir sér fram­boði heldur líka fjöl­skyldu hans. Svo er nauð­syn­legt að horfa til yfir­stand­andi verk­efna og skuld­bind­inga. Að lokum varð það mín nið­ur­staða að ég hef of margar skuld­bind­ingar vegna verk­efna sem ég hef tekið að mér til að geta á þess­ari stundu gefið kost á mér í það krefj­andi verk­efni að leiða lista sjálf­stæð­is­manna í borg­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár