Brak sem fannst í Indlandshafi að öllum líkindum úr týndu vélinni MH370

Flugvéla­brak fannst á frönsku eyjunni Réunion í Indlands­hafi í gær og nú er talið næstum öruggt að brakið sé úr týndu Boeing þotunni frá Malaysian Airlines, MH370, sem hvarf af ratsjám í mars í fyrra. Vélin hvarf af ratsjám yfir Indlands­hafi þegar hún var á leið frá Kuala Lumpur til Peking.

Brakið er tveir metrar og er talið hluti af væng. Þá hefur verið greint frá því í morgun að ferða­taska hafi einnig fundist, en hún gæti einnig hafa verið í flug­vélinni. Sérstök rannsóknar­teymi frá Frakk­landi og Malasíu munu rannsaka brakið.


BREAKING '657BB' code found on wreckage is Boeing 777 flaperon according to manual #MH370 http://t.co/MlhHe777Wd pic.twitter.com/bM9DPNW5gw


— AirLive.net (@airlivenet) July 30, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár