Bergþór Ólason bað Ingu Sæland afsökunar

Þing­maður Mið­flokks­ins hefur beðið Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, afsök­unar á því hvernig hann tal­aði um hana í sam­tali við aðra þing­menn Mið­flokks­ins á bar.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, skrifar á Facebook síðu sína í kvöld, að hann hafi nú þegar beðið Ingu Sæland, for­mann Flokks fólks­ins, afsök­unar á því hvernig hann tal­aði um hana í sam­tali við aðra þing­menn flokks­ins á bar nýverið.

Stundin segir frá því að Berg­þór Óla­son hafi kallað Ingu Sæland, for­mann og stofn­anda Flokks fólks­ins, „húrr­andi klikk­aða kunt­u“. 

DV og Stundin fengu upp­tök­urnar sendar nafn­laust og hafa í kvöld skrifað fréttir upp úr þeim, en í fréttum þeirra hefur meðal ann­ars komið fram að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveins­son, hafi talað með niðr­andi hætti um stjórn­mála­konur.

„Í kvöld hafa verið fluttar fréttir af hitt­ingi sex þing­manna á hót­el­bar í lið­inni viku. Eins og fram hefur komið varð mér þar hressi­lega á í mess­unni hvað munn­söfnuð varðar, í garð mann­eskju sem hafði ekk­ert sér til sakar unnið til að verð­skulda þá yfir­haln­ingu. Þar virð­ist ég hafa notað orð­færi sem er mér fram­andi og ég veit ekki til að ég hafi áður notað.

Ég ræddi við Ingu Sæland í kvöld og bað hana afsök­unar á fram­göngu minni. Um sam­starfið við Flokk fólks­ins vil ég segja að það hefur verið með miklum ágætum síð­asta árið, enda mál­efna­legur sam­hljómur um marga hluti.

Flest þekkjum við að hafa í lok­uðu rými talað óvar­lega, og jafn­vel af ósann­girni um annað fólk, þá sér­stak­lega þegar öl er haft um hönd, en það breytir því ekki að svona á maður ekki að tala um fólk,“ segir Bergþór Ólason á Facebook síðu sinni.

Sig­mundur Davíð hefur þegar tjáð sig um málið á Facebook síðu sinni, og segir það alvar­legt ef það eru stund­aðar hler­anir á einka­sam­tölum stjórn­mála­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár