Machado úr felum og heitir því að binda enda á „harðstjórn“ í Venesúela

„Ég kom til að taka við verð­laununum fyrir hönd venesúelsku þjóðarinnar og ég mun fara með þau aftur til Venesúela þegar rétti tíminn kemur,“ sagði Nóbels­verðlauna­hafinn María Corina Machado í morgun. Óvíst var hvort hún myndi ferðast til Óslóar til að taka við verð­laununum en hún hefur verið í felum síðan í janúar.

Nóbels­verðlauna­hafinn María Corina Machado mun gera sitt besta til að snúa aftur til Venesúela til að binda enda á „harðstjórnina“ í landinu, sagði hún þegar hún steig fram í sviðs­ljósið í Ósló í morgun eftir að hafa verið í felum í næstum ár.

Machado lét sig hverfa í janúar eftir að hafa ögrað stjórn Nicolás Maduro forseta. Óvissa var um hvort hún myndi taka við Nóbels­verðlaunum sínum í persónu en hún birtist fyrst á hótels­völum í norsku höfuð­borginni snemma í morgun þar sem stuðnings­menn hennar fögnuðu henni. 

Á blaðamanna­fundi þakkaði hún þeim sem „hættu lífi sínu“ til að koma henni til Óslóar. Ekki er ljóst hvernig hún komst til Noregs eða hvernig hún mun snúa aftur eftir að yfirvöld í Venesúela sögðu að hún yrði talin flótta­maður ef hún yfirgæfi landið.

Fyrir blaðamanna­fundinn hafði hún sagt við frétta­menn fyrir utan norska þingið að hún myndi gera sitt …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár